Á aðalfundi sem haldinn var í Rangárhöllinni 1. mars s.l. var kosin ný stjórn Hestamannafélagsins Geysis. Ólafur Þórisson formaður hestamannafélagsins til 12 ára hafði tilkynnt að hann myndi ekki sækjast eftir áframhaldandi formannssetu ásamt því að meðstjórnandi og tveir varamenn gáfu ekki kost á sér áfram. Kjósa þurfti því um formann, meðstjórnanda og tvo varamenn. Í framboði til formanns voru Eiríkur Vilhelm Sigurðarson og Sóley Margeirsdóttir.
Fundurinn var gríðarlega vel sóttur en um 130 manns voru mætt á fundinn og því greinilegt að mikill áhugi er á starfsemi félagsins. Talið er að þetta sé fjölmennasti aðalfundur félagsins allt frá stofnun 1949.
Stjórn Hestamannafélagsins Geysis er skipuð:
Eiríkur Vilhelm Sigurðarson, formaður
Lárus Jóhann Guðmundsson, vara-formaður
Dóróthea Oddsdóttir
Guðmundur Björgvinsson
Marta Gunnarsdóttir
Í vara-stjórn
Jónína Lilja Pálmadóttir
Sóley Margeirsdóttir
Stjórn mun hittast á næstu dögum og skipta með sér verkum.
Skýrlum verða einnig gerð nánari skil á næstu dögum. Ólafur Þórisson flutti skýrslu stjórnar, Katrín Sigurðardóttir flutti skýrslu Æskulýðsnefndar, Kristín Bjarnadóttir flutti skýrslu Reiðveganefndar, Úlfar Albertsson fór yfir starfsemi Skeiðvangs og tengdra félaga í Hvolsvelli og Gústav Magnús Ásbjörnsson fór yfir starfsemi Rangárbakka og Rangárhallar en þar bar hæst Landsmót hestamanna 2022.