Um verkefnið
Á kortinu eru reiðleiðir í Rangárvallasýslu merktar inn. Heimildir fyrir leiðum þessum koma frá félögum í hestamannafélaginu Geysi, auk þess sem leiðir þær sem Jónas Kristjánsson hefur merkt inn voru settar inn með hans leyfi.
Leiðir eru merktar inn með heimild landeiganda. Leiðirnar eru flokkaðar í þrjá litaflokka.
Rauð leið – opin án skilyrða. Þetta eru yfirleitt leiðir á sérstökum malbornum reiðleiðum
Blá leið – leiðir öllum opnar sem fylgja þeim skilyrðum sem sett eru. Þau geta verið margs konar en fram kemur í leiðarlýsinga hvaða skilyrði fylgja leiðinn.
Græn leið – leiðir sem liggja eftir vegum – taka þarf tillit til bifreiða og annarra aksturstækja sem þar kunna að vera.
Kortin sem fylgja hverri leið eru því miður ekki mjög nákvæm. Stefnt er að því að hægt verði að útvega helstu leiðahnit af hverri leið. Kortið er í vinnslu og mun verða áfram. Unnið er að velja og útbúa nýjar leiðir og breyta eldri leiðum með það að markmiði að gera leiðirnar öruggari og aðskilja betur umferð ríðandi manna frá annarri umferð. Leiðarlýsingar eru ekki ýkja nákvæmar en unnið er að því að bæta þann þátt smám saman, auk þess sem áætlað er að bæta inn áhugaverðum stöðum sem finna má á eða í nágrenni leiðanna.
Við hvetjum hestamenn til að skipuleggja ferðir sínar ætíð í samráði við landeigendur og til að sýna landinu og landeigendum tillitsemi. Við bendum sérstaklega á lög þar að lútandi.
Óþarft ætti að vera að benda á að loka ber öllum hliðum sem menn koma að lokuðum. Þá skal forðast að ríða út fyrir leiðirnar og nýta þá áningarstaði sem merktir inn eru fremur enn að á annars staðar. Þá er mönnum bent á að fylgja þeim reglum sem settar eru um einstaka leiðir. Ávallt skal sýna ýtrustu aðgæslu þegar farið er yfir á vaði og ávallt hafa samband við kunnuga þegar mælst er til þess í leiðarlýsingu. Vöð geta breytt sér á tiltölulega skömmum tíma og sum geta verið mjög varasöm.
Þá er rétt að benda á að þegar komið er yfir í önnur sveitarfélög kunna að vera aðrar reglur í gangi t.d. hvað varðar umferð lausra hesta.
Vinsamlegast sendið vefstjóra póstef þið sjáið villur eða hafið aðrar athugasemdir.
Tilurð gagna
Skrá þessi er samansafn upplýsinga úr aðalskipulagi sveitarfélaganna, leiðir Jónasar Kristjánssonar og leiðir sem aðilar úr hverri deild hestamannafélagsins Geysir hafa merkt inn á loftmyndir á sáu um að afla heimildar landeiganda í hverju tilfelli fyrir sig.
Verkefnisstjóri er Þuríður Aradóttir, Landmótun sf sá um kortavinnuna og Jón Ágúst Reynisson kom gögnum inn í vefumhverfi. Athugasemdir berist til verkefnisstjóra;thuri[hjá]hvolsvollur.is
|