Deprecated: Optional parameter $download_url declared before required parameter $js_action is implicitly treated as a required parameter in /var/www/vhosts/hmfgeysir.is/httpdocs/wp-content/plugins/the-events-calendar/common/vendor/vendor-prefixed/stellarwp/installer/src/Installer/Handler/Plugin.php on line 123

Deprecated: Optional parameter $did_action declared before required parameter $js_action is implicitly treated as a required parameter in /var/www/vhosts/hmfgeysir.is/httpdocs/wp-content/plugins/the-events-calendar/common/vendor/vendor-prefixed/stellarwp/installer/src/Installer/Handler/Plugin.php on line 123

Deprecated: Creation of dynamic property Tribe__Events__Aggregator::$migrate is deprecated in /var/www/vhosts/hmfgeysir.is/httpdocs/wp-content/plugins/the-events-calendar/src/Tribe/Aggregator.php on line 420

Deprecated: Creation of dynamic property Tribe__Events__REST__V1__EA_Messages::$messages is deprecated in /var/www/vhosts/hmfgeysir.is/httpdocs/wp-content/plugins/the-events-calendar/src/Tribe/REST/V1/Messages.php on line 12

Deprecated: Creation of dynamic property Tribe__Events__Aggregator::$records is deprecated in /var/www/vhosts/hmfgeysir.is/httpdocs/wp-content/plugins/the-events-calendar/src/Tribe/Aggregator.php on line 424

Deprecated: Creation of dynamic property Tribe__Events__Aggregator::$cron is deprecated in /var/www/vhosts/hmfgeysir.is/httpdocs/wp-content/plugins/the-events-calendar/src/Tribe/Aggregator.php on line 425

Deprecated: Creation of dynamic property Tribe__Events__Aggregator::$errors is deprecated in /var/www/vhosts/hmfgeysir.is/httpdocs/wp-content/plugins/the-events-calendar/src/Tribe/Aggregator.php on line 428

Deprecated: Creation of dynamic property Tribe__Events__Main::$registered is deprecated in /var/www/vhosts/hmfgeysir.is/httpdocs/wp-content/plugins/the-events-calendar/src/Tribe/Main.php on line 670

Deprecated: Creation of dynamic property Tribe\Events\Event_Status\Classic_Editor::$context is deprecated in /var/www/vhosts/hmfgeysir.is/httpdocs/wp-content/plugins/the-events-calendar/src/Tribe/Event_Status/Classic_Editor.php on line 63

Deprecated: Creation of dynamic property Tribe__Events__Venue::$singular_venue_label_lowercase is deprecated in /var/www/vhosts/hmfgeysir.is/httpdocs/wp-content/plugins/the-events-calendar/src/Tribe/Venue.php on line 108

Deprecated: Creation of dynamic property Tribe__Events__Venue::$plural_venue_label_lowercase is deprecated in /var/www/vhosts/hmfgeysir.is/httpdocs/wp-content/plugins/the-events-calendar/src/Tribe/Venue.php on line 110

Deprecated: Creation of dynamic property Tribe__Events__Organizer::$singular_organizer_label_lowercase is deprecated in /var/www/vhosts/hmfgeysir.is/httpdocs/wp-content/plugins/the-events-calendar/src/Tribe/Organizer.php on line 72

Deprecated: Creation of dynamic property Tribe__Events__Organizer::$plural_organizer_label_lowercase is deprecated in /var/www/vhosts/hmfgeysir.is/httpdocs/wp-content/plugins/the-events-calendar/src/Tribe/Organizer.php on line 74

Deprecated: Creation of dynamic property Tribe__Events__Main::$singular_event_label_lowercase is deprecated in /var/www/vhosts/hmfgeysir.is/httpdocs/wp-content/plugins/the-events-calendar/src/Tribe/Main.php on line 970

Deprecated: Creation of dynamic property Tribe__Events__Main::$plural_event_label_lowercase is deprecated in /var/www/vhosts/hmfgeysir.is/httpdocs/wp-content/plugins/the-events-calendar/src/Tribe/Main.php on line 971

Deprecated: Creation of dynamic property Tribe__Events__Main::$currentDay is deprecated in /var/www/vhosts/hmfgeysir.is/httpdocs/wp-content/plugins/the-events-calendar/src/Tribe/Main.php on line 975

Deprecated: Creation of dynamic property Tribe__Events__Main::$errors is deprecated in /var/www/vhosts/hmfgeysir.is/httpdocs/wp-content/plugins/the-events-calendar/src/Tribe/Main.php on line 976

Deprecated: Creation of dynamic property Tribe__Events__Main::$scheduler is deprecated in /var/www/vhosts/hmfgeysir.is/httpdocs/wp-content/plugins/the-events-calendar/src/Tribe/Main.php on line 2355
Hestamannafélagið Geysir – Hestamannafélagið Geysir https://www.hmfgeysir.is Hestamannafélagið Geysir Thu, 08 Aug 2024 12:29:52 +0000 is hourly 1 https://wordpress.org/?v=6.2.14 Suðurlandsmót yngri flokka https://www.hmfgeysir.is/2024/08/08/sudurlandsmot-yngri-flokka/ Thu, 08 Aug 2024 12:29:52 +0000 https://www.hmfgeysir.is/?p=972 Suðurlandsmót yngri flokka

Opið verður fyrir skráningar til sunnudagsins 11. ágúst kl. 23:59.

Suðurlandsmót yngri flokka fer fram 16. – 18. ágúst á Rangárbökkum.

Mótið er opið og leggjum við upp með að bjóða uppá sem flesta flokka en komi til þess að ekki náist viðunandi fjöldi í flokka verða þeir felldir niður eða sameinaðir öðrum eftir atvikum.

Fyrirspurnir vegna mótsins sendist á skraninggeysir@gmail.com

Mótstjóri: Sóley Margeirsdóttir

Opið verður fyrir skráningar til sunnudagsins 11. ágúst kl. 23:59.

Nokkur atriði sem keppendur skulu hafa í huga:
– Nái skráningar ekki 20 í flokki eru eingöngu riðin A-úrslit.
– Nái skráningar ekki viðunandi fjölda fellur flokkur niður eða verður sameinaður öðrum eftir atvikum.
– Keppendur eru ábyrgir fyrir skráningu sinni.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
Pollaflokkur
Barnaflokkur
V2, T4, T3 og T7
Unglingaflokkur
V2, F2, T3, T4 og T7, PP1, P2
Ungmennaflokkur
V2, F2, T3, T4 og T7, PP1, P2

Skráningargjöld eru eftirfarandi:
6500 kr
5000 kr í 100m skeið.

Sjáumst á Rangárbökkum!

]]>
Frá aðalfundi Geysis https://www.hmfgeysir.is/2024/03/26/951/ Tue, 26 Mar 2024 07:12:23 +0000 https://www.hmfgeysir.is/?p=951 Aðalfundur Geysis fór fram miðvikudaginn 6. mars. Í kjöri til stjórnar voru laus þrjú sæti aðalmanna og tvö sæti varamanna. Allir stjórnar og vara-stjórnarmenn gáfu kost á sér áfram en þær breytingar urðu að Lárus Jóhann Guðmundsson sem átti sæti í stjórn var kosinn í stjórn til eins árs í stað tveggja ára til þess að “leiðrétta” samkvæmt lögum félagsins. Sóley Margeirsdóttir var kosin í aðalstjórn en var áður vara maður. Marta Gunnarsdóttir var endurkjörin í stjórn. Eiríkur Vilhelm Sigurðarson formaður og Guðmundur Björgvinsson meðstjórnandi voru kjörnir til tveggja ára á aðalfundi 2023. Í varastjórn eru Dórothea Oddsdóttir og Jónína Lilja Pálmadóttir.

Á fundinum voru lög félagsins uppfærð og má nálgast þau hér.

Stjórn félagsins hefur haldið fyrsta fund og skipti þar með sér verkum samkvæmt lögum.

Stjórn og hlutverk:
Eiríkur Vilhelm Sigurðarson, Formaður.
Sóley Margeirsdóttir, Vara-Formaður.
Lárus Jóhann Guðmundsson, Gjaldkeri.
Marta Gunnarsdóttir, Ritari.
Guðmundur Friðrik Björgvinsson, Meðstjórnandi.
—
Jónína Lilja Pálmadóttir, Varastjórn.
Dórothea Oddsdóttir, Varastjórn.

 

 

Aðalfundargerð má nálgast hér fyrir neðan.

Aðalfundur Hestamannafélagsins Geysis

Haldinn 6. mars 2024 klukkan 19:00 í Rangárhöllinni

Mættir 26 félagsmenn

Dagskrá:

  1. Kosnir fastir starfsmenn fundarins.

Guðný H. Indriðadóttir ritari og Jón G. Valgeirsson fundarstjóri.

  1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu ári.

Eiríkur Vilhelm Sigurðsson flutti skýrslu stjórnar. Öflugt námskeiðahald fyrir yngri iðkendur og mikið líf í mótahaldi á árinu.

  1. Nefndir gefa skýrslur
  • Fræðslunefnd – Sara Pesenacker flutti skýrslu nefndar.
  • Mótanefnd – Sóley Margeirsdóttir flutti skýrslu nefndar. Mótanefnd sér um stærri mót sem haldin eru. Framundan er meðal annars úrtaka fyrir landsmót.
  • Skemmtinefnd – Erlendur Árnason sagði frá nýstofnaðri nefnd. T.d. fyrirhuguð folandasýning og skemmtikvöld
  • Reiðveganefnd – Kristín Bjarnadóttir flutti skýrslu nefndar. Alls eru 75 milljónir í reiðvegafé á landsvísu en um 11 milljónir komu inn á suðursvæði 2 sem er svæðið sem Geysir tilheyrir, ásamt Hestamannafélögunum Sindra og Kóp. Fyrirliggjandi er að reiðvegafé verði aukið 2024.
  • Vetrarmótanefnd – Eiríkur Vilhelm flutti skýrslu nefndar í fjarveru nefndarmanna
  • Æskulýðsnefnd – Heiðdís Arna Ingvarsdóttir flutti skýrslu nefndar. Framundan er föndurkvöld og einnig er búið að fá Guðmund Árnason í Baldvin og Þorvaldi til að koma og kenna umhyrðu reiðtygja. Æska Suðurlands í samstarfi við önnur félög á Suðurlandi o.fl. framundan.
  • Rangárbakkar og Rangárhöllin – Gústav M. Ásbjörnsson sagði frá starfi félaganna í stórum dráttum. Svæðið nánast í stöðugri notkun frá vori og fram á haust og yfirgnæfandi meirihluti kynbótahrossa sýnd á svæðinu. Bókaðar eru 7 vikur í kynbótasýningar sumarið 2024. Verið að vinna í makaskiptum á landi við Rangárþing ytra þannig að Rangárbakkar eigi allar lóðir undir stóðhestahúsi, Rangárhöllinni og lóð sunnan við stóðhestahús. Rangárbakkar sóttu, ásamt öllum hestamannafélögum á suðurlandi, um að halda landsmót 2028 og fengu það. Rangárhöllin er í mikilli notkun og aðstaða hefur verið bætt. Um 22 ha af landi sem Rangárbakkar hafa á sínu forræði og huga þarf vel að því hvernig á að nota þá.
  • Skeiðvangur – Úlfar Albertsson sagði frá því helsta í starfinu þar. Alma Gulla Matthíasdóttir kennir þar knapamerkin, haldin er firmakeppni á sumardaginn fyrsta o.fl. Til eru einhverjir fjármunir til að klára framkvæmdir sem þar hafa verið í gangi.
  1. Reikningar ársins 2023.

Lárus Guðmundsson fór yfir ársreikninginn. Staða í lok árs 2023 12 milljónir í plús og félagið er skuldlaust. Reikningar samþykktir

 

  1. Ákvörðun árgjalds til eins árs.

Tillaga stjórnar að árgjaldi 2024 er 10.500 kr, sem er hækkun um 1.000 kr úr 9.500 kr. Tillagan er samþykkt.

 

  1. Lagabreytingar en til umræðu verða 2.,5.,6.,7.,8., 10., 11., 12., 15. og 16. grein.

2. gr.

Félagsmenn geta allir orðið sem þess óska. Nýr félagi öðlast félagsréttindi þegar stjórn félagsins hefur samþykkt aðild hans og hann hefur greitt félagsgjald. Um keppnisrétt fyrir hönd Geysis og á mótum félagsins gilda reglur LH. Þar stendur að keppnisrétt öðlast félagar eftir 30 daga í félaginu.

Tillaga að 2. grein.

Félagsmenn geta allir orðið sem þess óska. Nýr félagi öðlast félagsréttindi þegar stjórn félagsins hefur samþykkt aðild hans og hann hefur greitt félagsgjald. Um keppnisrétt fyrir hönd Geysis og á mótum félagsins gilda reglur LH.

Tillaga samþykkt.

5. grein í dag

Skipta skal félaginu í starfsdeildir, fleiri eða færri eftir atkvikum á hverjum tíma, sem ákveðst á aðalfundi.

Tillaga að 5. grein.

Heimilt er að skipta félaginu í starfsdeildir, fleiri eða færri eftir atvikum á hverjum tíma.

Tillaga samþykkt

6. grein í dag

Hver deild kýs sér deildarstjóra til eins árs í senn á aðalfundi viðkomandi deildar. Einnig skal hverri deild heimilt að kjósa sér stjórn með deildarstjóra og skal hann þá verða formaður hennar jafnframt. Skal kjörið tilkynnt félagsstjórn fyrir aðalfund. Deildarstjóri/Deildarstjórn skal hafa umsjón og forystu um allt æfinga- og félagsstarf í viðkomandi deild, undirbúning og þátttöku deildarinnar í mótum félagsins. Deildarstjóri er sjálfkjörinn í fulltrúaráð og mótsstjórn.

Tillaga að 6. grein.

Tillaga er um að greinin verði alveg tekin út.

Tillaga samþykkt.

7. grein í dag

Mótsstjórn félagsmóts skal þannig skipuð:
Deildarstjórar allir sitja í mótsstjórn en félagsstjórn skipar formann, Mótsstjórn ræður framkvæmdastjóra og aðra starfsmenn móts.

Tillaga að 7. Grein

Tillaga er um að greinin verði alveg tekin út.

Tillaga samþykkt.

8. grein í dag

Um verðlaunarétt og annað varðandi kappreiðar fer að öllu eftir reglum LH. Verðlaunaupphæð ákvarðar félagsstjórn fyrir hvert mót. Um verðlaun fyrir aðrar keppnisgreinar eða sýningar fer eftir sérreglum er þar um gilda á hverjum tíma.

Tillaga er um að greinin verði alveg tekin út.

Tillaga samþykkt.

10. grein í dag

Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
Kosnir fastir starfsmenn fundarins.
Skýrsla stjórnar um starfssemi félagsins á liðnu ári.
Nefndir gefa skýrslur

Reikningar næstliðins árs, sem gjaldkera ber að leggja fram endurskoðaða.

Ákvörðun árgjalds til eins árs.
Lagabreytingar, ef fram koma.
Aðrar tillögur sem eru til afgreiðslu á fundinum.
Kosningar skv. 12. gr.

Tillaga að 10. Grein (verður 7. grein)

Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
1. Kosning fundarritara og fundarstjóra
2. Skýrsla stjórnar
3. Skýrslur nefnda
4. Endurskoðaður ársreikningur
5. Ákvörðun árgjalds til eins árs.
6. Lagabreytingar
7. Aðrar tillögur sem eru til afgreiðslu á fundinum.
8. Kosningar skv. 9. gr.

Tillaga samþykkt.

11. grein

Í kosningum ræður einfaldur meirihluti nema um lagabreytingu sé að ræða, þá þarf 2/3 hluta atkvæða kjörgengra og mættra félagsmanna. Hver félagi hefur aðeins eitt atkvæði. Málefni sem félagar óska að tekin verði fyrir á fundinum skulu tilkynnt stjórn félagsins minnst einni viku fyrir fund. Fundur getur með 2/3 hluta atkvæða viðstaddra leyft að taka fyrir mál, önnur en lagabreytingar, sem komið er fram, eftir að dagskrá fundarins var auglýst.

Tillaga að 11. grein (verður 8 grein)

Í kosningum ræður einfaldur meirihluti viðstaddra félagsmanna nema um lagabreytingu sé að ræða, þá þarf 2/3 hluta atkvæða. Hver félagi hefur aðeins eitt atkvæði. Málefni sem félagar óska að tekin verði fyrir á fundinum skulu tilkynnt stjórn félagsins minnst einni viku fyrir fund. Fundur getur með 2/3 hluta atkvæða viðstaddra félagsmama leyft að taka fyrir mál, önnur en lagabreytingar, sem komið er fram, eftir að dagskrá fundarins var auglýst.

Tillaga samþykkt.

12. grein

Félagsstjórn skal skipuð fimm mönnum, formanni, varaformanni og þremur meðstjórnendum. Skulu þeir kosnir skriflega til tveggja ára í senn þannig: formaður og tveir meðstjórnendur eru kosnir annað árið og varaformaður og einn meðstjórnandi hitt árið. (Ef í stöðu formanns er kjörinn sitjandi varaformaður skal kosinn nýr varaformaður til eins árs). Kjósa skal tvo menn í varastjórn til eins árs í senn. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum nema formaður og varaformaður sem kosnir eru á aðalfundi. Kjósa skal tvo skoðunarmenn reikninga til tveggja ára í seinn og ganga þeir út sitt árið hvor. Kosning fulltrúa á landsþing LH skal fara fram annað hvert ár eða það ár sem þingið fer fram og skal kjörið vera skv. lögum LH. Þrír stjórnarmenn; formaður, ritari og gjaldkeri skulu vera sjálfkjörnir til setu á landsþingi. Geti einhver nefndra manna ekki mætt á landsþingið skal annar stjórnarmaður mæta í hans stað. Félagsmenn hafa allir sama rétt, með þeirri undantekningu að kjörgengi og kosningarétt til íþróttaþinga (s.s HSK þings) og landsþings hafa þeir félagsmenn, sem náð hafa 16 ára aldri. Skylt er hverjum kjörgengum félaga að taka skipun eða kosningu til trúnaðarstarfa fyrir félagið eitt kjörtímabil, en ekki er hann skyldur að taka endurkjöri.

Tillaga að 12. Grein (verður 9. Grein)

Stjórn skal skipuð fimm mönnum, formanni og fjórum meðstjórnendum. Skulu þeir kosnir skriflega til tveggja ára í senn þannig: formaður og tveir meðstjórnendur eru kosnir annað árið og tveir meðstjórnendur hitt árið. Kjósa skal tvo menn í varastjórn til eins árs í senn. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum á fyrsta fundi eftir aðalfund félagsins. Nema formaður sem kosinn er á aðalfundi. Kjósa skal tvo skoðunarmenn reikninga til tveggja ára í senn og ganga þeir út sitt árið hvor. Stjórn velur fulltrúa á landsþing LH og HSK þing. Stjórn er sjálfkjöin til setu á landsþingi. Félagsmenn hafa allir sama rétt, með þeirri undantekningu að kjörgengi og kosningarétt til íþróttaþinga (s.s HSK þings) og landsþings hafa þeir félagsmenn, sem náð hafa 16 ára aldri. Skylt er hverjum kjörgengum félaga að taka skipun eða kosningu til trúnaðarstarfa fyrir félagið eitt kjörtímabil, en ekki er hann skyldur að taka endurkjöri.

Tillaga samþykkt.

15. grein

Félagsstjórn og deildarstjórar mynda fulltrúaráð sem kalla skal saman til allra meiriháttar ákvaðarðana er formaður telur við þurfa og ekki er boðað til félagsfundar. Almennir félagsfundir skulu ekki vera færri en tveir á ári svo og er félagsstjórn skylt að boða til félagsfundar ef 15 menn eða fleiri óska þess. Komi fram tillögur á félagsfundi, sem að mati stjórnar hafi veruleg áhrif á starfssemi félagsins, er stjórninni heimilt að boða til framhaldsfundar vegna málsins eigi síðar en 20 dögum síðar. Fundir skulu ætíð boðaðir á tryggan hátt með góðum fyrirvara og skal ætíð geta fundarefnis í fundarboði.

Tillaga að 15. Grein (verður 12. grein)

Almennir félagsfundir skulu ekki vera færri en tveir á ári og er stjórn skylt að boða til félagsfundar ef 15 félagsmenn eða fleiri óska þess. Komi fram tillögur á félagsfundi, sem að mati stjórnar hafi veruleg áhrif á starfsemi félagsins, er stjórninni heimilt að boða til framhaldsfundar vegna málsins eigi síðar en 20 dögum síðar. Fundir skulu ætíð boðaðir á tryggan hátt með góðum fyrirvara og skal ætíð geta fundarefnis í fundarboði.

Tillaga samþykkt.

16. grein

Annan félagsfundinn skal halda fyrir lok nóvember ár hvert og skal skipa í starfsnefndir félagsins. Starfsnefndirnar eru æskulýðsnefnd, fræðslunefnd, vetrarmótanefnd, íþróttamótanefnd, gæðingamótanefnd, reiðveganefnd. Einnig aðrar tímabundar starfsnefndir. Greinargerðir hverrar nefndar er að finna á heimasíðu félgsins.

Tillaga að 16. grein (verður 13. grein)

Annan félagsfundinn skal halda fyrir lok nóvember ár hvert og skal skipa í starfsnefndir félagsins. Starfsnefndirnar eru æskulýðsnefnd, fræðslunefnd, vetrarmótanefnd, mótanefnd og reiðveganefnd. Einnig aðrar tímabundar starfsnefndir. Greinargerðir hverrar nefndar er að finna á heimasíðu félagsins.

Tillaga samþykkt.

Stjórn er falið að uppfæra og setja lögin upp í samræmi við lagabreytingar og setja í rétta talnaröð.

Tillaga samþykkt.

  1. Aðrar tillögur sem eru til afgreiðslu á fundinum
  • Umræðuefni frá stjórn:
  • Reiðvegamál við Hvammsvirkjun – Verið í viðræðum um reiðleiðir við Hvammsvirkjun.
  • Landsmót 2024 – Geysir á 7 fulltrúa í hverjum flokki á landsmóti. Spurt hvort hægt væri að halda æfingamót áður en kæmi að úrtöku fyrir mótið og það er til skoðunar. Byrjað er að kanna mál varðandi fatnað merktan félaginu fyrir mótið.
  1. Kosningar skv. 12. gr
  • Kjósa á um 3 aðalmenn í stjórn sem og 2 varamenn. Aðalmenn eru kosnir til tveggja ára en varamenn til eins árs.

Tillaga að 1 aðalmaður verði kosinn til eins árs og 2 aðalmenn til tveggja ára og 2 varamenn verði kosnir til 1 árs.

Lárus Jóhann Guðmundsson kjörinn sem aðalmaður til eins árs.

Sóley Margeirsdóttir og Marta Gunnarsdóttir kjörnar sem aðalmenn til tveggja ára.

Varamenn kjörnir til eins árs: Jónína Lilja Pálmadóttir og Dórothea Oddsdóttir.

Endurskoðandi til tveggja ára Einar Grétar Magnússon.

Einar Grétar Magnússon kvaddi sér hljóðs og sagði frá skönnun, sem verið er að vinna að, á myndasafni sem er í eigu Hestamannafélagsins Geysis.

Fundi slitið 20:52

]]>
Rökkvi frá Hvolsvelli og Hrafnkatla frá Hemlu folöld sýningarinnar https://www.hmfgeysir.is/2024/03/25/rokkvi-fra-hvolsvelli-og-hrafnkatla-fra-hemlu-folold-syningarinnar/ Mon, 25 Mar 2024 07:13:34 +0000 https://www.hmfgeysir.is/?p=955
Folaldasýning Geysis fór fram sunnudaginn 24 mars. Frábær þátttaka var í sýningunni en 32 folöld voru skráð til leiks.
Eitt af markmiðum Hestamannafélagsins Geysis að rækta reiðhrossastofna héraðsins til meiri fegurðar og kosta. Þar hafa félagar staðið sig gríðarlega vel síðustu ár og ljóst er að framtíðin er verulega björt.
Efstu þrjú hestfolöldin:
1. Rökkvi frá Hvolsvelli
F: Spaði frá Stuðlum
M: Frigg frá Hvolsvelli
2. Örn frá Baldurshaga
F: Ellert frá Baldurshaga
M: Halastjarna frá Baldurshaga
3. Greipur frá Árbæ
F: Glampi frá Skeiðháholti
M: Gleði frá Árbæ
Efstu þrjú merfolöldin:
1. Hrafnkatla frá Hemlu
F: Forkur frá Breiðabólsstað
M: Hrafndís frá Hemlu II
2. Aradís frá Miðkoti
F: Fáfnir frá Miðkoti
M: Atorka frá Miðkoti
3. Eldrún frá Miðkoti
F: Fáfnir frá Miðkoti
M: Enja frá Miðkoti
Glæsilegir vinningar voru veittir fyrir efstu 3 folöldin í hverjum flokki ásamt farandgripum fyrir efsta sætið í hvorum flokki.
Reglulega hafa folaldasýningar á vegum deilda Geysis farið fram en þetta var í fyrsta skipti sem félagið sjálft stóð fyrir folaldasýningu. Leitað var til þeirra félaga sem síðast hafa átt efsta Heiðursverðlaunahest og efstu Heiðursverðlaunahryssuna. Síðasti Heiðursverðlaunahestur ræktaður af Geysisfélaga er Sjóður frá Kirkjubæ en hann hlaut Heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á Landsmóti 2022. Voru það ræktendur Sjóðs, Blesi ehf / Kirkjubæ, sem gáfu þennan bikar og kallast hann því Sjóðsbikarinn. Síðasta heiðursverðlaunahryssa ræktuð af Geysisfélaga er Elísa frá Feti sem er í eigu Takthesta á Rauðalæk, fékk því bikarinn nafnið Elísubikarinn. Við kunnum þeim bestu þakkir fyrir.
Folald sýningarinnar var kosið af áhorfendum og gaf Siggi Valur teiknari glæsilega mynd. Það fór svo að folald sýningarinnar var Litli- Rökkvi frá Litlalandi í Ásahreppi og eigandi hennar er Eva Hrönn Ásmundsdóttir.
Við þökkum öllum sem tóku þátt og komu og áttu góðan skemmtilegan dag í Skeiðvangi á Hvolsvelli.
Skemmtinefnd Geysis
]]>
Óskum eftir starfsmanni í fjölbreytt, skemmtilegt og gefandi hlutastarf https://www.hmfgeysir.is/2024/03/21/oskum-eftir-starfsmanni-i-fjolbreytt-skemmtilegt-og-gefandi-hlutastarf/ Thu, 21 Mar 2024 06:48:05 +0000 https://www.hmfgeysir.is/?p=947 Hestamannafélagið Geysir hefur vaxið síðustu ár og eru félagar í dag orðnir á níunda hundrað. Félagið stendur fyrir fjölda viðburða allt árið um kring s.s. námskeið, fræðsluerindi, sýningar, mót og fleira. Nú er komið að þeim tímapunkti að taka næstu skref í þróun félagsins og fá til liðs við okkur starfsmann til þess að auka sýnileika, halda utan um skráningar á námskeið og félagatal og fleira.

Félagið óskar eftir starfsmanni í fjölbreytt, skemmtilegt og gefandi hlutastarf. Vinnutími og vinnuframlag er umsemjanlegt en viðkomandi væri sem verktaki og fær greitt eftir vinnuframlagi.

Helstu verkefni:

– Regluleg umfjöllun um starfsemi félagsins s.s. námskeið, viðburði og fl.
– Utanumhald um skráningar á námskeið og félagatal.
– Taka myndir af námskeiðum og viðburðum og skrásetja.
– Auglýsingar.
– Umsjón með heimasíðu og samfélagsmiðlum.
– Aðstoða stjórn og nefndir.
– Annað sem stjórn felur viðkomandi.

Viðkomandi þarf að vera agaður í vinnubrögðum, sýna frumkvæði og vera drífandi. Góð tölvukunnátta er skilyrði.

Yfirmaður starfsmanns er formaður félagsins.

Ekki er um fullt starf að ræða heldur hlutastarf sem getur hentað vel með öðrum verkefnum. Verkefnið er tilraunaverkefni.

Umsóknarfrestur er til 30. mars.

Áhugasamir hafi samband á hmfgeysir@gmail.com eða í s: 8662632.

]]>
WR Íþróttamót Geysis https://www.hmfgeysir.is/2024/03/15/wr-ithrottamot-geysis/ Fri, 15 Mar 2024 14:05:02 +0000 https://www.hmfgeysir.is/?p=966 Opið WR Íþróttamót Geysis fer fram 9. – 12. maí á Rangárbökkum og er gríðarleg tilhlökkun í loftinu fyrir fyrsta utanhús móti ársins á Rangárbökkum enda dagskrá sumarsins þétt.
Mótið er opið og leggjum við upp með að bjóða uppá sem flesta flokka en komi til þess að ekki náist viðunandi fjöldi í flokka verða þeir felldir niður eða sameinaðir öðrum eftir atvikum.
Fyrirspurnir vegna mótsins sendist á skraninggeysir@gmail.com
]]>
Breytingartillögur á lögum á aðalfundi 6. mars n.k. https://www.hmfgeysir.is/2024/02/28/breytingartillogur-a-logum-a-adalfundi/ Wed, 28 Feb 2024 21:32:07 +0000 https://www.hmfgeysir.is/?p=942 Aðalfundur Hestamannafélagsins Geysis fer fram miðvikudaginn 6. mars í Rangárhöllinni á Hellu og hefst kl. 19:00.

Kynna þarf breytingartillögur á lögum félagsins viku fyrir aðalfund og er það gert hér með.

Til umræðu verða 2.,5.,6.,7.,8., 10., 11., 12., 15. og 16. grein.

Núverandi lög má finna hér. 

  1. grein í dag

Félagsmenn geta allir orðið sem þess óska. Nýr félagi öðlast félagsréttindi þegar stjórn félagsins hefur samþykkt aðild hans og hann hefur greitt félagsgjald. Um keppnisrétt fyrir hönd Geysis og á mótum félagsins gilda reglur LH. Þar stendur að keppnisrétt öðlast félagar eftir 30 daga í félaginu.

Tillaga að 2. grein.

Félagsmenn geta allir orðið sem þess óska. Nýr félagi öðlast félagsréttindi þegar stjórn félagsins hefur samþykkt aðild hans og hann hefur greitt félagsgjald. Um keppnisrétt fyrir hönd Geysis og á mótum félagsins gilda reglur LH.

  1. grein í dag

Skipta skal félaginu í starfsdeildir, fleiri eða færri eftir atkvikum á hverjum tíma, sem ákveðst á aðalfundi.

Tillaga að 5. grein.

Heimilt er að skipta félaginu í starfsdeildir, fleiri eða færri eftir atvikum á hverjum tíma.

  1. grein í dag

Hver deild kýs sér deildarstjóra til eins árs í senn á aðalfundi viðkomandi deildar. Einnig skal hverri deild heimilt að kjósa sér stjórn með deildarstjóra og skal hann þá verða formaður hennar jafnframt. Skal kjörið tilkynnt félagsstjórn fyrir aðalfund. Deildarstjóri/Deildarstjórn skal hafa umsjón og forystu um allt æfinga- og félagsstarf í viðkomandi deild, undirbúning og þátttöku deildarinnar í mótum félagsins. Deildarstjóri er sjálfkjörinn í fulltrúaráð og mótsstjórn.

Tillaga að 6. grein.

Tillaga er um að greinin verði alveg tekin út.

  1. grein í dag

Mótsstjórn félagsmóts skal þannig skipuð:
Deildarstjórar allir sitja í mótsstjórn en félagsstjórn skipar formann, Mótsstjórn ræður framkvæmdastjóra og aðra starfsmenn móts.

Tillaga að 7. Grein

Tillaga er um að greinin verði alveg tekin út.

  1. grein í dag

Um verðlaunarétt og annað varðandi kappreiðar fer að öllu eftir reglum LH. Verðlaunaupphæð ákvarðar félagsstjórn fyrir hvert mót. Um verðlaun fyrir aðrar keppnisgreinar eða sýningar fer eftir sérreglum er þar um gilda á hverjum tíma.

Tillaga er um að greinin verði alveg tekin út.

  1. grein í dag

Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
Kosnir fastir starfsmenn fundarins.
Skýrsla stjórnar um starfssemi félagsins á liðnu ári.
Nefndir gefa skýrslur

Reikningar næstliðins árs, sem gjaldkera ber að leggja fram endurskoðaða.

Ákvörðun árgjalds til eins árs.
Lagabreytingar, ef fram koma.
Aðrar tillögur sem eru til afgreiðslu á fundinum.
Kosningar skv. 12. gr.

Tillaga að 10. Grein (verður 7. grein)

Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
1. Kosning fundarritara og fundarstjóra
2. Skýrsla stjórnar
3. Skýrslur nefnda
4. Endurskoðaður ársreikningur
5. Ákvörðun árgjalds til eins árs.
6. Lagabreytingar
7. Aðrar tillögur sem eru til afgreiðslu á fundinum.
8. Kosningar skv. 12. gr.

  1. grein

Í kosningum ræður einfaldur meirihluti nema um lagabreytingu sé að ræða, þá þarf 2/3 hluta atkvæða kjörgengra og mættra félagsmanna. Hver félagi hefur aðeins eitt atkvæði. Málefni sem félagar óska að tekin verði fyrir á fundinum skulu tilkynnt stjórn félagsins minnst einni viku fyrir fund. Fundur getur með 2/3 hluta atkvæða viðstaddra leyft að taka fyrir mál, önnur en lagabreytingar, sem komið er fram, eftir að dagskrá fundarins var auglýst.

Tillaga að 11. grein (verður 8 grein)

Í kosningum ræður einfaldur meirihluti nema um lagabreytingu sé að ræða, þá þarf 2/3 hluta atkvæða. Hver félagi hefur aðeins eitt atkvæði. Málefni sem félagar óska að tekin verði fyrir á fundinum skulu tilkynnt stjórn félagsins minnst einni viku fyrir fund. Fundur getur með 2/3 hluta atkvæða viðstaddra leyft að taka fyrir mál, önnur en lagabreytingar, sem komið er fram, eftir að dagskrá fundarins var auglýst.

  1. grein

Félagsstjórn skal skipuð fimm mönnum, formanni, varaformanni og þremur meðstjórnendum. Skulu þeir kosnir skriflega til tveggja ára í senn þannig: formaður og tveir meðstjórnendur eru kosnir annað árið og varaformaður og einn meðstjórnandi hitt árið. (Ef í stöðu formanns er kjörinn sitjandi varaformaður skal kosinn nýr varaformaður til eins árs). Kjósa skal tvo menn í varastjórn til eins árs í senn. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum nema formaður og varaformaður sem kosnir eru á aðalfundi. Kjósa skal tvo skoðunarmenn reikninga til tveggja ára í seinn og ganga þeir út sitt árið hvor. Kosning fulltrúa á landsþing LH skal fara fram annað hvert ár eða það ár sem þingið fer fram og skal kjörið vera skv. lögum LH. Þrír stjórnarmenn; formaður, ritari og gjaldkeri skulu vera sjálfkjörnir til setu á landsþingi. Geti einhver nefndra manna ekki mætt á landsþingið skal annar stjórnarmaður mæta í hans stað. Félagsmenn hafa allir sama rétt, með þeirri undantekningu að kjörgengi og kosningarétt til íþróttaþinga (s.s HSK þings) og landsþings hafa þeir félagsmenn, sem náð hafa 16 ára aldri. Skylt er hverjum kjörgengum félaga að taka skipun eða kosningu til trúnaðarstarfa fyrir félagið eitt kjörtímabil, en ekki er hann skyldur að taka endurkjöri.

Tillaga að 12. Grein (verður 9. Grein)

Stjórn skal skipuð fimm mönnum, formanni og fjórum meðstjórnendum. Skulu þeir kosnir skriflega til tveggja ára í senn þannig: formaður og tveir meðstjórnendur eru kosnir annað árið og tveir meðstjórnendur hitt árið. Kjósa skal tvo menn í varastjórn til eins árs í senn. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum nema formaður sem kosinn er á aðalfundi. Kjósa skal tvo skoðunarmenn reikninga til tveggja ára í senn og ganga þeir út sitt árið hvor. Stjórn velur  fulltrúa á landsþing LH og HSK þing. . Stjórn ersjálfkjöintil setu á landsþingi.Félagsmenn hafa allir sama rétt, með þeirri undantekningu að kjörgengi og kosningarétt til íþróttaþinga (s.s HSK þings) og landsþings hafa þeir félagsmenn, sem náð hafa 16 ára aldri. Skylt er hverjum kjörgengum félaga að taka skipun eða kosningu til trúnaðarstarfa fyrir félagið eitt kjörtímabil, en ekki er hann skyldur að taka endurkjöri.

  1. grein

Félagsstjórn og deildarstjórar mynda fulltrúaráð sem kalla skal saman til allra meiriháttar ákvaðarðana er formaður telur við þurfa og ekki er boðað til félagsfundar. Almennir félagsfundir skulu ekki vera færri en tveir á ári svo og er félagsstjórn skylt að boða til félagsfundar ef 15 menn eða fleiri óska þess. Komi fram tillögur á félagsfundi, sem að mati stjórnar hafi veruleg áhrif á starfssemi félagsins, er stjórninni heimilt að boða til framhaldsfundar vegna málsins eigi síðar en 20 dögum síðar. Fundir skulu ætíð boðaðir á tryggan hátt með góðum fyrirvara og skal ætíð geta fundarefnis í fundarboði.

Tillaga að 15. Grein (verður 12. grein)

Almennir félagsfundir skulu ekki vera færri en tveir á ári svo og er stjórn skylt að boða til félagsfundar ef 15 menn eða fleiri óska þess. Komi fram tillögur á félagsfundi, sem að mati stjórnar hafi veruleg áhrif á starfsemi félagsins, er stjórninni heimilt að boða til framhaldsfundar vegna málsins eigi síðar en 20 dögum síðar. Fundir skulu ætíð boðaðir á tryggan hátt með góðum fyrirvara og skal ætíð geta fundarefnis í fundarboði.

  1. grein

Annan félagsfundinn skal halda fyrir lok nóvember ár hvert og skal skipa í starfsnefndir félagsins. Starfsnefndirnar eru æskulýðsnefnd, fræðslunefnd, vetrarmótanefnd, íþróttamótanefnd, gæðingamótanefnd, reiðveganefnd. Einnig aðrar tímabundar starfsnefndir. Greinargerðir hverrar nefndar er að finna á heimasíðu félgsins.

Tillaga að 16. grein (verður 13. grein)

Annan félagsfundinn skal halda fyrir lok nóvember ár hvert og skal skipa í starfsnefndir félagsins. Starfsnefndirnar eru æskulýðsnefnd, fræðslunefnd, vetrarmótanefnd, mótanefnd og reiðveganefnd. Einnig aðrar tímabundar starfsnefndir. Greinargerðir hverrar nefndar er að finna á heimasíðu félagsins.

 

 

]]>
Dagskráin framundan https://www.hmfgeysir.is/2024/02/27/dagskrain-framundan/ Tue, 27 Feb 2024 22:49:37 +0000 https://www.hmfgeysir.is/?p=939
Það má með sanni segja að það sé þétt dagskrá framundan.
Fjölmenni er á námskeiðum í Rangárhöllinni og Skeiðvangi og því til viðbótar fjöldi viðburða sem mig langar að gera betri skil.
Laugardagurinn 2. mars – 2. Vetrarmót Geysis í Rangárhöllinni á Hellu
Sunnudagurinn 3. mars – Sýnikennsla á Heimsmælikvarða í Skeiðvangi á Hvolsvelli
Þriðjudaginn 5. mars – Suðurlandsdeildin hefst með keppni í Parafimi og Slaktaumatölti.
Miðvikudaginn 6. mars – Aðalfundur Hestamannafélagsins Geysis fer fram í Rangárhöllinni og hefst kl. 19:00.
Sjáumst!
]]>
Aðalfundur Geysis https://www.hmfgeysir.is/2024/02/21/adalfundur-geysis/ Wed, 21 Feb 2024 21:26:16 +0000 https://www.hmfgeysir.is/?p=933 Aðalfundur Geysis verður haldin í Rangárhöllinni miðvikudagskvöldið 6.mars og hefst kl 19:00.
 
Dagskrá:

1. Kosnir fastir starfsmenn fundarins.
2. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu ári.
3. Nefndir gefa skýrslur

  • Fræðslunefnd, mótanefnd, skemmtinefnd, reiðveganefnd, vetrarmótanefnd og æskulýðsnefnd.

4. Reikningar næstliðins árs.

5. Ákvörðun árgjalds til eins árs.

6. Lagabreytingar en til umræðu verða 2.,5.,6.,7.,8., 10., 11., 12., 15. og 16. grein.

7. Aðrar tillögur sem eru til afgreiðslu á fundinum

  • Tilkynna þarf stjórn með minnst viku fyrirvara tillögur sem bera á upp eða fá samþykki 2/3 fundarmanna.

8. Kosningar skv. 12. gr

  • Kjósa á um 3 aðalmenn í stjórn sem og 2 varamenn. Aðalmenn eru kosnir til tveggja ára en varamenn til eins árs.
Óskum eftir áhugasömum einstaklingum til starfa fyrir félagið.
 
Fjölmennum og tökum kvöldið frá og förum saman yfir störf félagsins á liðnu ári ásamt þeim verkefnum sem framundan eru.
 
Stjórnin.
]]>
Reiðveganefnd Geysis óskar eftir umsóknum https://www.hmfgeysir.is/2024/02/15/reidveganefnd-geysis-oskar-eftir-umsoknum-2/ Thu, 15 Feb 2024 23:08:31 +0000 https://www.hmfgeysir.is/?p=930
Reiðveganefnd Geysis óskar eftir umsóknum frá félagsmönnum vegna reiðvegaframvæmda árið 2024.
Umsóknir geta verið vegna lagningar nýrra reiðvega, vegna viðhalds eldri vega, vegna merkinga, vegna viðhalds áningarhólfa o.s.frv.
Tilgreina þarf í umsókninni:
– Staðsetningu og lengd reiðgötu (eða verkefnis)
– Stutt lýsing á núverandi aðstæðum og hvað þurfi að gera til að gatan verði greiðfær/hættulaus
– Lýsing á jarðvegi/núverandi undirlagi, hvort þurfi ræsi og annað sem getur skipt máli við gerð kostnaðaráætlunar
– Hverjir standa að umsókninni og hvert mótframlag þeirra (t.d. í formi vinnu) verður við framkvæmdina
Þeir sem lagt hafa fram umsóknir en ekki enn fengið úthlutun eru beðnir um að endurnýja umsóknina til að tryggja að við gleymum engum.
Eins er gott að fá frá félagsmönnum ábendingar um ástand núverandi reiðvega hafi menn tekið eftir köflum sem eru erfiðir eða hættulegi yfirferðar á ferðum sínum um svæðið.
Umsóknir og ábendingar skulu sendar á vegghamar@internet.is fyrir 21. febrúar.
]]>
Vetrarmót https://www.hmfgeysir.is/2024/02/01/vetrarmot/ Thu, 01 Feb 2024 20:57:59 +0000 https://www.hmfgeysir.is/?p=927 1. Vetrarmót Geysis 2024 verður haldið í Rangárhöllinni laugardaginn 3. febrúar.
Pollastund, pollatölt, barnaflokkur, unglingaflokkur, unngmennaflokkur, 2. flokkur og opinn flokkur.
Skráning fer fram í gegnum Sportfeng og er opin til 2. febrúar.
Fjölmennum á 1. Vetrarmót vetrarins!
]]>