Uppskeruhátíð æskulýðsstarfs Geysis verður sunnudaginn 14. janúar kl. 16.00 í anddyri Rangárhallarinnar.

Veittar verða viðurkenningar fyrir þátttöku á viðburðum, skemmtunum, mótum og öðru sem tengist hestamennskunni árið 2017.

Jakob Svavar Sigurðsson heimsmeistari í TÖLTI kíkir í heimsókn.

Veitingar verða í boði.

Vonandi sjáum við sem flest Geysis börn, unglinga og ungmenni sem og foreldra.