Geysisfélagar hér að neðan er linkurinn okkar til að kaupa miða á LM á Hellu og um leið styrkja Geysi!

Með því að kaupa í forsölu í gegnum linkinn hér að neðan renna 1.000 kr til hestamannafélagsins. Miðaverð í forsölu er aðeins 16.900 kr. Forsölu lýkur um áramót, 31.12.2019.

Fátt gleður hestamanninn meira en að opna jólapakkann og að þar leynist miði á Landsmót hestamanna 2020!
Miðaverð í forsölu er 16.900 kr, fullt verð í hliði á mótinu sjálfu er 24.900 kr og því mikill sparnaður að tryggja sér miða strax.
Helgarpassar fara í sölu eftir áramót og munu þeir þá kosta 16.900 kr.
Á Landsmóti hestamanna á Hellu næsta sumar verður boðið uppá frábæra skemmtun, margir af helstu skemmtikröftum landsins munu mæta, veitingar verða í hávegum hafðar og aðstaðan öll eins og best verður á kosið!
Ef einhverjar spurningar eru varðandi Landsmót hestamanna 2020 þá ekki hika við að hafa samband á landsmot@landsmot.is
Tökum höndum saman – styðjum félagið og tryggjum okkur um leið miða á Landsmót hestamanna 2020 á besta mögulega verði.