Um liðna helgi var bæjarhátíð Rangárþings eystra haldin hátíðleg á Hvolsvelli og í nærsveitum, Kjötsúpuhátíðin. Venjan er að á laugardegi hátíðarinnar eru þeim veittar viðurkenningar sem skara fram úr í íþróttastarfi, leggja hart að sér og eru góðar fyrirmyndir.

Að þessu sinni hlotnaðist félagsmanni Geysis nafnbótin Íþróttamaður ársins 2025-2026, en titilinn hlaut Hans Þór Hilmarsson fyrir árangur sinn á árinu. Hans þykir einnig góð fyrirmynd innan keppnisvallarins sem og utan hans.

  • Hans byrjaði þetta ár sterkur í Meistaradeildinni í hestaíþróttum þar sem hann landaði öðru sæti í fimmgangi á Öl frá Reykjavöllum.
  • Á Íslandsmóti hneppti Hans Þór silfur i 150m skeiði, á hryssunni Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði á tímanum 14,03 sekúndum sem jafnframt er fjórði besti tími ársins.
  • Hápunkti sumarsins náði Hans síðan á Landsmóti Hestamanna í júlí á Hólum í Hjaltadal þegar hann landaði einum eftirsóknarverðasta sigri hestamennskunnar í A-flokk á hestinum Sindra frá Hjarðartúni með einkunnina 9,13.

Við hjá Hestamannafélaginu Geysi óskum Hans Þór innilega til hamingju með titilinn og árangur sinn á árinu. Við gleðjumst virkilega þegar hestamaður hlýtur slíkan heiður innan íþróttahreyfingarinnar.

 

 

 

höf. Edda S Th.