Landsliðsþjálfararnir Sigvaldi Lárus Guðmundsson (U21) og Ísólfur Líndal Þórisson (A-lið) hafa nú sett saman landsliðshópa í hestaíþróttum fyrir starfsárið 2026-2027.

Á heimsmeistaramótinu á næsta ári eru fimm sæti í boði fyrir knapa í ungmennaflokki og kemur það í ljós þegar nær dregur hvaða knapar og hestar munu fylla þessi sæti. Á síðasta HM áttum við þrjá sigurvegara í ungmennaflokki, þau Védísi Huld Sigurðardóttir, Jón Ársæl Bergmann og Kristján Árna Birgisson, en þau verða öll komin í fullorðinsflokk á næsta ári og munu verja titla sína í þeim flokki.

Mikið starf er framundan hjá landsliðunum okkar en fram að móti verður ýmis fræðsla og einnig fjáröflunarviðburðir. Þar á meðal mótið Allra sterkustu og sýnikennslur landsliðsis.

Vert er að taka fram að knapar sem ekki eru á listunum hér að neðan eiga einnig möguleika að sýna getu sína fram að heimsmeistaramótinu þar sem landsliðsþjálfarar fylgjast vel með og eru tilbúnir að bæta knöpum í hópinn ef til þess kemur.

U21-landsliðshópurinn er skipaður eftirfarandi 20 knöpum en þar má sjá þrjá knapa úr Hestamannafélginu Geysi.

Apríl Björk Þórisdóttir, hestamannafélagið Sprettur
Dagur Sigurðarson, hestamannafélagið Geysir
Eik Elvarsdóttir, hestamannafélagið Geysir
Elísabet Líf Sigvaldadóttir, hestamannafélagið Geysir
Elsa Kristín Grétarsdóttir, hestamannafélagið Sleipnir
Elva Rún Jónsdóttir, hestamannafélagið Sprettur
Fanndís Helgadóttir, hestamannafélagið Sörli
Gabríel Liljendahl Friðfinnsson, hestamannafélagið Fákur
Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal, hestamannafélagið Þytur
Guðný Dís Jónsdóttir, hestamannafélagið Sprettur
Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir, hestamannafélagið Snæfellingur
Herdís Björg Jóhannsdóttir, hestamannafélagið Sprettur
Hjördís Halla Þórarinsdóttir, hestamannafélagið Skagfirðingur
Kolbrún Sif Sindradóttir, hestamannafélagið Sörli
Kristín Eir Holaker Hauksdóttir, hestamannafélagið Borgfirðingur
Lilja Rún Sigurjónsdóttir, hestamannafélagið Fákur
Loftur Breki Hauksson, hestamannafélagið Sleipnir
Matthías Sigurðsson,, hestamannafélagið Fákur
Ragnar Snær Viðarsson, hestamannafélagið Fákur
Sara Dís Snorradóttir, hestamannafélagið Sörli

 

A-landsliðshópurinn er skipaður eftirfarandi 25 knöpum en þar á meðal eru 10 knapar frá Hestamannafélaginu Geysi. 

Titilverjendur

Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir, Herði, heimsmeistari í T2
Árni Björn Pálsson, Fáki, heimsmeistari í T1
Kristján Árni Birgisson, Geysi, heimsmeistari í P1 og P2 ungmenna
Védís Huld Sigurðardóttir, Sleipni, heimsmeistari í V1 og T1 ungmenna
Jón Ársæll Bergmann, Geysi, heimsmeistari í F1, PP1 og samanlögðum fimmgangsgreinum ungmenna

Aðrir knapar

Ásmundur Ernir Snorrason, Geysi
Brynja Kristinsdóttir, Sörla
Daníel Gunnarsson, Skagfirðingi
Elvar Þormarsson, Geysi
Eyrún Ýr Pálsdóttir, Fáki
Flosi Ólafsson, Borgfirðingi
Glódís Rún Sigurðardóttir, Sleipni
Guðmunda Ellen Sigurðardóttir, Sleipni
Gústaf Ásgeir Hinriksson, Geysi
Hanna Rún Ingibergsdóttir, Geysi
Hans Þór Hilmarsson, Geysi
Haukur Baldvinsson, Sleipni
Helga Una Björnsdóttir, Þyt
Jakob Svavar Sigurðsson, Dreyra
Jóhanna Margrét Snorradóttir, Geysi
Sigurður Matthíasson, Fáki
Sigurður Sigurðarson, Geysi
Sigursteinn Sumarliðason, Sleipni
Viðar Ingólfsson, Fáki
Þorgeir Ólafsson, Geysi