Undanfarna mánuði hefur verið unnið að því að fjölga skilgreindum reiðleiðum á skipulagi Rangárþings ytra. Vinnan hefur staðið yfir í tölvuverðan tíma og hafa margir fengið tækifæri á að taka þátt og segja sína skoðun.

Með þessum kynningarpósti eru hestamenn á svæðinu hvattir til þess að skoða gögnin, kynna sér leiðirnar og hafa tækifæri á að koma sinni skoðun til Hestamannafélagsins. Hægt er að kommenta við fréttina, senda póst á hmfgeysir@gmail.com eða hringja í formann félagsins í s: 8662632 eftir kl. 16 á daginn.

Það kom í ljós að á reiðvegakorti Landssambands hestamannafélaga voru töluvert fleiri leiðir en á raunverulegu skipulagi sveitarfélagsins. Hestamannafélagið Geysir stefnir á að setja fé í tengi- og ferðaleiðir út á þessu svæði sumarið 2026 en forsenda þess að það sé hægt er að leiðirnar rati alla leið inná skipulag sveitarfélagsins.

Lögð hefur verið áhersla á að tengja reiðleiðir í kringum Hellu við nýtt hesthúsahverfi sem og útfæra mögulegar hringleiðir úr nýju hesthúsahverfi sem nýtast öllum þeim sem stunda hestamennsku. Hvort sem það eru hestamenn úr hverfinu eða keppnis- og kynbótaknapar sem heimsækja svæðið tímabundið.

Reiðleiðirnar eru hér skilgreindar á korti og nokkur orð sett niður um hvað gera þurfi á hverri leið fyrir sig.

Hægt er að óska eftir aðgangi að rafrænu vinnukorti með því að senda póst á hmfgeysir@gmail.com. Mikilvægt er að hafa í huga að leiðirnar hafa verið rissaðar upp, ekki nákvæmlega útsettar.

Leið 1 – Hringur í kringum hesthúsahverfi. Er á skipulagi sveitarfélagsins í dag. Þörf á að skilgreina betur hvar skuli fara með aðalvegi. Byggja þarf leiðina upp og gera sýnilegri. Lengd: 1,15 km

 

Leið 2 – Lýsingur. Reiðleið með vegi frá þjóðvegi. Sveitarfélagið stefnir á að þessi leið verði upplýst. Bæta þarf efni í leiðina.

 

Leið 3 – Hringleið sem tengist inná stóra völlinn.
Setja þarf leiðina á skipulag. Gera þarf rennu á milli beitarhólfa. Gera þarf reiðveg frá hesthúsahverfi og vestur/norður að stóra vellinum. Gera þarf reiðveg norðan við stóra hringvöllinn með ræsi yfir skurðinn sem tengist inná „bílastæði“ svo hægt sé að taka reiðleiðina frá veginum. Það þarf því töluverðar framkvæmdir til þess að þessi leið geti orðið að veruleika.
Lengd: 2,27 km

 

Leið 4 – Hringleið / Flatir
Leiðin nýtir aðrar leiðir að hluta en byggja þarf upp reiðvegi þar sem þeir eru ekki fyrir. Möguleg samlegðaráhrif verða með öðrum framkvæmdum. Leiðin tengir leiðir við Þjóðveg 1, Rangárvelli og Aldamótaskóg.
Lengd: 2.75 km

 

Tengileið austan keppnisvallar
Mikilvæg tengileið við aðrar leiðir og nýtist vel.

 

Leiðir í Aldamótaskógi Segja má að leiðir í Aldamótaskógi séu sérverkefni en þær bjóða uppá gríðarlega mikla möguleika og tengjast öðrum leiðum. Hægt verður að fara hringleið sem verður allt að 6.5 km. Til stendur af hálfu sveitarfélagsins að gera reiðfært undir brú við Síki. Leiðir í Aldamótaskógi verða nýttar til fjölbreyttar útivistar þar sem gangandi og ríðandi munu að einhverju leyti notast við sömu stíga.

 

Tengingar við gamla hesthúsahverfið, rekstrarhring og Rangárvallaveg. Þessar leiðir eru að mestu á skipulagi að undanskildri leiðinni undir brúnna við Síkið (gul).

 

Leið með þjóðvegi og neyðarleið
Á skipulagi Rangárþings ytra eru ekki skilgreindar reiðleiðir við þjóðveg 1 í gegnum þorpið. Það verður til þess að engar tengingar eru frá Árbæjarvegi/Þykkvabæjarvegi og að Rangárvallavegi. Þessar leiðir verða skilgreindar á skipulagi þar sem þær eru sannarlega til staðar í dag þó vissulega megi bæta þær.