Hestamannafélagið Geysis slær ekki slöku við og hafa nefndir félagsins verið iðnar og keppst við að raða viðburðum í dagatal félagsmanna og vina þeirra!
Hér má sjá stiklað á þessum viðburðum ásamt nokkrum myndum.
6. febrúar – Fyrirlestur á vegum æskulýðsnefndar – Andlegur styrkur knapa í keppni og æfingum
Æskulýðsnefnd Geysis bauð á fyrirlestur öllum sem við koma keppni í hestaíþróttum
Edda Dögg Ingibergsdóttir sem er með MSc í íþróttasálfræði og starfar sem íþróttasálfræðiráðgjafi kom til að fræða viðstadda. Hún hefur unnið með íþróttafólki allt frá byrjendum upp í landsliðsfólk í fjölbreyttum greinum og leggur áherslu á að hjálpa einstaklingum að styrkja hugarfar sitt og ná fram hámarksárangri.
Fyrirlesturinn var ætlaður knöpum sem vilja bæta frammistöðu sína bæði á æfingum og í keppni. Fjallað var um hvernig andlegi þátturinn hefur áhrif á árangur, sjálfstraust, einbeitingu og líðan undir álagi. Þátttakendur fengu hagnýtar aðferðir og verkfæri til að vinna markvisst með sjálfa sig, mæta í keppni með meiri ró, skýrari fókus og sterkari trú á eigin getu — sem skapar betri grunn fyrir stöðuga frammistöðu bæði innan vallar og utan.
Auk þess var sérstakur fyrirlestur fyrir foreldra og aðstandendur þar sem farið var yfir hvernig þau gætu stutt knapann sinn betur í undirbúningi og keppni, ásamt því að fá innsýn í þau tæki og tól sem knapinn vinnur með.
7. febrúar – Fyrsta mót vetrarleika fór fram af mikilli prýði. Flott skráning og fór hæst yndisleg krílastund og frábær þátttaka í barnaflokki sem var tvískiptur í minna keppnisvana og meira keppnisvana.
- A – úrslit
- Unglingaflokkur – A – úrslit
- A – úrslit
- Sigurvegari minna vanir barnaflokk: Benedikt Leví
- Sigurvegari Barnaflokks meira vanir: Hrafnar Freyr
12. febrúar – Hobbý hestar
og fótbolta hittingur
á vegum æskulýðsnefndar
Æskulýðsnefndin bauð öllum krökkum í Geysi á öllum aldri á hobbý hesta og fótbolta hitting í Rangárhöllinni fimmtudaginn 12.2. klukkan 18-20 
Allir voru hvattir til að mæta með sína hobbý hesta og íþróttaskó 
Nokkrir snillingar voru búnir að melda sig inn til að hafa gaman með okkur og skella í skemmtilega leiki.
Jón Ársæll, Flosi, Ásmundur Ernir, Gústaf Ásgeir, Benjamín Sandur & Þorgeir létu boltann rúlla 

Á eftir, bauð nefndin upp á pizzur í anddyri reiðhallarinnar 
12. febrúar – Pubquiz skemmtinefndar
Komið var að hinu árlega pubquiz-i hjá skemmtinefnd Geysi!
Hittist fólk i Rangárhöllinni á fimmtudagskvöldi, 12. Febrúar kl 20:30, beint eftir hobby-hesta 😉
Hittist fólk i Rangárhöllinni á fimmtudagskvöldi, 12. Febrúar kl 20:30, beint eftir hobby-hesta 😉
Okkar allra besti Hjörvar Ágústsson stýrði leiknum og var frábær stemning og vinningshafar hnepptu glæsilega vinninga frá, SS búvörum, Fóðurblöndunni, Líflandi, Húsasmiðjunni, Hótel Rangá, Caves of Hella og Southcoast Adventures!
Frítt var inn og allir velkomnir! Boðið var upp á kaffi og gos á staðnum en fólk gat komið með allt annað með sér ef það vildi.
Hefjum við núna magnaðan mars sem hefst á engu öðru en virkilega fræðandi og skemmtilegri sýnikennslu sem var í kvöld í Skeiðvangi, Hvolsvelli, á vegum fræðslunefndar OG svo verður folaldasýning 15. mars !!
Ekki missa af því !!

Höfundur: Edda S Thorlacius


















