edda

About Edda Sigurðardóttir

This author has not yet filled in any details.
So far Edda Sigurðardóttir has created 33 blog entries.

Landsliðsknapar úr röðum Geysis

Landsliðsþjálfararnir Sigvaldi Lárus Guðmundsson (U21) og Ísólfur Líndal Þórisson (A-lið) hafa nú sett saman landsliðshópa í hestaíþróttum fyrir starfsárið 2026-2027. Á heimsmeistaramótinu á næsta ári eru fimm sæti í boði fyrir knapa í ungmennaflokki og kemur það í ljós þegar nær dregur hvaða knapar og hestar munu fylla þessi sæti. Á síðasta HM áttum við [...]

2026-10-15T12:22:07+00:0015. október, 2026|

Sóley tekur við formennsku í Geysi

Breyting hefur orðið á formennsku Hestamannafélagsins Geysis en Eiríkur Vilhelm Sigurðarson hefur látið af formennsku í félaginu. Sóley Margeirsdóttir, varaformaður Geysis, tekur við formennsku fram að næsta aðalfundi félagsins, sem fyrirhugaður er í mars eða apríl næstkomandi. Þar verður kosið um formann félagsins að nýju.Eiríkur tók við starfi sveitarstjóra Rangárþings ytra í sumar og í [...]

2026-10-05T21:35:07+00:005. október, 2026|

Hans Þór valinn Íþróttamaður ársins í Rangárþingi eystra

Um liðna helgi var bæjarhátíð Rangárþings eystra haldin hátíðleg á Hvolsvelli og í nærsveitum, Kjötsúpuhátíðin. Venjan er að á laugardegi hátíðarinnar eru þeim veittar viðurkenningar sem skara fram úr í íþróttastarfi, leggja hart að sér og eru góðar fyrirmyndir. Að þessu sinni hlotnaðist félagsmanni Geysis nafnbótin Íþróttamaður ársins 2025-2026, en titilinn hlaut Hans Þór Hilmarsson [...]

2026-09-03T12:13:56+00:003. september, 2026|

WR Suðurlandsmót Geysis og skeiðleikar 2026

WR Suðurlandsmót fer fram 27.-30. ágúst 2026 á Rangárbökkum og er gríðarleg tilhlökkun í loftinu fyrir síðasta móti ársins á Rangárbökkum! Skráningar og flokkar Mótið er ætlað fullorðins flokkum og er opið. Komi til þess að ekki náist viðunandi fjöldi í flokka gætu þeir verið felldir niður eða einungis riðin forkeppni. Ungmenni mega skrá í [...]

2026-08-23T22:21:33+00:0023. ágúst, 2026|

Fréttir frá reiðveganefnd

Reiðveganefnd hestamannafélagsins Geysis starfar iðulega ár hvert til að bæta samgöngur hestamanna um okkar nær umhverfi og sveitir. Einnig fylgist nefndin vel með því þegar framkvæmdir og breytingar eiga sér stað sem raska þessum leiðum. Áningarhólf er komið upp við Stóra Dímon Sett hefur verið upp nýtt áningarhólf við Stóra Dímon að sunnanverðu. [...]

2026-08-23T22:14:57+00:0023. ágúst, 2026|

Suðurlandsmót yngri flokka 2026

Hestamannafélagið Geysir heldur Suðurlandsmót yngri flokka 14.-16. ágúst næstkomandi. Opnað hefur verið fyrir skráningar inni í Sportfeng og er skráningarfrestur til 9. ágúst kl 23:59. Hvetjum við alla til að skrá tímanlega. Boðið verður uppá eftirfarandi greinar: Pollaflokkur: pollatölt Barnaflokkur: V2, T3 og T4. Unglingaflokkur: V2, F2, T3, T4, PP1 og P2. Ungmennaflokkur: V2, F2, [...]

2026-08-06T11:29:26+00:006. ágúst, 2026|

Niðurstöður úrtöku Geysis fyrir Landsmót 2026

Síðastliðna helgi fór fram sameiginleg úrtaka Hestamannafélaganna Geysis, Jökuls, Sindra og Kóps. Við kynnum hér niðurstöður Geysisfélaga en ljóst er að innan okkar félags eru virkilega glæsilegir hestar og færir knapar! Innilegar hamingjuóskir öll sömul ! Næsta vika mun síðan leiða í ljós hvaða knöpum við getum bætt við þennan glæsilega hóp þegar stöðulistar verða [...]

2026-06-18T22:52:58+00:0018. júní, 2026|

Skráningarfrestur framlengdur

Skráningarfrestur hefur verið framlengdur á gæðingamót/úrtöku Hestamannafélagsins Geysis til laugardagsins 6. júní nk. kl. 23:59. Gæðingamótið/úrtaka fyrir Landsmót 2026 fer fram dagana 12.-14. júní næstkomandi. Við biðjum þó alla sem ætla að skrá, að skrá sem allra fyrst svo hægt sé að áætla tíma og dagskrá eins snemma og best verður á kosið! Við hlökkum [...]

2026-06-05T01:39:17+00:005. júní, 2026|

Upplýsingar um Landsmót frá Geysi

Nú fer senn að líða að Landsmóti hestamanna sem haldið verður að þessu sinni á Hólum í Hjaltadal, Skagafirði. Við hjá Hestamannafélaginu Geysi erum virkilega spennt fyrir mótinu og tilheyrandi aðdraganda og undirbúningi. Undirbúningur félagsmanna okkar er að vanda löngu hafinn og hestar að verða klárir í úrtöku. Meðal annars hafa yfirstandandi keppnisnámskeið fyrir börn [...]

2026-06-03T22:01:09+00:003. júní, 2026|

Sumarnámskeið í Júní

Nú í júní verða sumarnámskeið í samstarfi við Geysi bæði hjá Ölmu Gullu í Traðarási og Eddu í Reiðskólanum Stakkholti. Nemendur skrá sig á námskeið í gegnum Abler og verða þá sjálfkrafa félagsmenn í hestamannafélaginu Geysi. Félagsgjöld eru ekki greidd fyrr en upp úr 18 ára aldri. Traðarás Sumarnámskeiðin í Traðarási snúa aftur. Útreiðarnámskeið ætlað [...]

2026-06-18T22:34:32+00:0024. maí, 2026|
Go to Top