Aðalfundur Hestamannafélagsins Geysis fer fram í Rangárhöllinni við Hellu mánudaginn 30. mars og hefst kl 20:30.
Dagskrá:
- Kosning fundarritara og fundarstjóra
- Skýrsla stjórnar
- Skýrslur nefnda
- Endurskoðaður ársreikningur
- Ákvörðun árgjalds til eins árs
- Lagabreytingar
Engar lagabreytingar liggja fyrir fundinum en hér má nálgast núverandi lög félgasins: https://www.hmfgeysir.is/geysir/log-og-reglur/
- Aðrar tillögur sem eru til afgreiðslu á fundinum
Engar tillögur liggja fyrir fundinum. Málefni sem félagar óska að tekin verði fyrir á fundinum skulu tilkynnt stjórn félagsins minnst einni viku fyrir fund. Fundur getur með 2/3 hluta atkvæða viðstaddra leyft að taka fyrir mál, önnur en lagabreytingar, sem komið er fram, eftir að dagskrá fundarins var auglýst.
- Kosningar skv. 9. gr
Kosið verður um tvo aðalmenn til tveggja ára og tvo varamenn til eins árs.
Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum verður tekin umræða um tilnefningar, verðlaunaveitingar, heiðursfélaga og heiðursvörð. Til eru reglur um tilnefningar og verðlaunaveitingar sem stjórn hefur farið eftir. Hægt er að sjá þessar reglur á heimasíðu félagsins. Í framhaldi af umræðum mun stjórn taka þessi mál sérstaklega til umfjöllunar og gefa út endurskoðaðar reglur ef þurfa þykir.
Fjölmennum og tökum kvöldið frá og förum saman yfir störf félagsins á liðnu ári ásamt þeim verkefnum sem framundan eru.
Við hvetjum félagsmenn til þess að mæta á aðalfund og láta sig mál félagsins varða.
Stjórn Hestamannafélagsins Geysis
