Þann 7. mars fór fram Parafimi í Suðurlandsdeild Cintamani í hestaíþróttum2023. Það var mikil tilhlökkun í loftinu þar sem þetta var fyrsta greindeildarinnar í ár. Það voru 26 pör sem tóku þátt úr 13 liðum og var frábærstemmning í húsinu.
Eftir æsispennandi forkeppni þar sem Ólafur Þórisson ogSarah Maagaard Nielsen úr liði Húsasmiðjunnar leiddu. Á hæla þeirra komu HelgaUna Björnsdóttir og Birna Olivia Agnarsdóttir úr liði Nonnenmacher og þriðju Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir og Vilborg Smáradóttir úr liði Black Crust Pizzeria.
Eftir að allir höfðu sýnt úrslita sýningar fór það svo að Helga Una Björnsdóttir og Birna Olivia Agnarsdóttir úr liði Nonnenmacher sigruðu með einkunnina 7.53 og fast á hæla þeirra komu Ólafur Þórisson og Sarah Maagaard Nielsen úr liði Húsasmiðjunnar með einkunnina 7.48 og í því þriðja Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir og Vilborg Smáradóttir úr liði Black Crust Pizzeria.
Við þökkum þeim fjölmörgu áhorfendum sem komu í húsið og einnigþeim sem fylgdust með á Alendis sem og öllum þeim sem komu að Suðurlandsdeildinni í kvöld.
Að loknu fyrsta kvöldi er það því lið Nonnenmacher sem stendur efsten fast á hæla þeirra koma Húsasmiðjan og Árbæjarhjáleiga/Hjarðartún
Sæti Lið Parafimi
1 Nonnenmacher 96
2 Húsasmiðjan 86
3 Árbæjarhjáleiga / Hjarðartún 84
4 Vöðlar / Snilldarverk / Sumarliðabær 76
5 Black Crust Pizzeria 72
6 Krappi 62
7 Töltrider 54
8 Hemla / Hrímnir / Strandarhöfuð 44
9 Múli hrossarækt / Hestasál ehf. 32
10 Nagli 32
11 Syðri-Úlfsstaðir / Traðarás 32
12 Dýralæknir Sandhólaferju 26
13 Fiskars 4
Suðurlandsdeildin á í frábæru samstarfi við HestabrautFjölbrautarskóla Suðurlands og aðstoða nemendur hestabrautar við framkvæmdhvers kvölds.
Við sjáum næst 21. mars í Rangárhöllinni á Hellu þar semkeppt verður í fjórgang.
Mynd: Lið Nonnenmacher ásamt hluta af stjórn Suðurlandsdeildar. F.v. Kristrún Ósk Baldursdóttir (Suðurlandsdeild), Eyjalín Harpa Eyjólfsdóttir (Suðurlandsdeild), Annukka Siipola (Nonnenmacher), Sigvaldi Lárus Guðmundsson (Nonnenmacher), Katrín Eva Grétarsdóttir (Nonnenmacher), Helga Una Björnsdóttir (Nonnenmacher), Birna Olivia Agnarsdóttir (Nonnenmacher), Larissa Silja Werner (Nonnenmacher, liðsstjóri) og Eiríkur Vilhelm Sigurðarson (formaður Suðurlandsdeildar).