Í gærkvöld hélt æskulýðsnefnd hópeflis hitting þar sem spilaður var fótbolti og keppt í boðhlaupi meðal annars. Margir af okkar allra bestu afreksknöpum mættu og öttu kappi við upprennandi hestamenn okkar félags. Allir voru velkomnir, öll börn, unglingar og ungmenni og endaði kvöldið með dýrindis pizzum í andyri Rangárhallarinnar.

Hér eru nokkrar myndir af þessu stórkostlegu samverustund. Við þökkum æskulýðsnefnd kærlega fyrir að skipuleggja og standa fyrir þessu. Þess má geta að þetta er bara byrjunin að enn öðru frábæru ári nefndarinnar 👌👌