Firmakeppni Hvolhreppsdeildar Geysis 2023 verður haldin í Skeiðvangi þann 20. apríl næstkomandi kl 14:00.
Að öllu óbreyttu byrjum við á hópreið um Hvolsvöll, frá hesthúsahverfinu við Dufþaksbraut að Dvalarheimilinu Kirkjuhvoli, stundvíslega kl. 13:00.
Keppt verður síðan í eftirfarandi flokkum:
Pollaflokkur
Barnaflokkur
Unglingaflokkur
Ungmennaflokkur
Minna vanir
Meira vanir
Skráning fer fram á staðnum frá 12:30 til 13:30.
Kaffisala Kvenfélagsins Einingar verður á loftinu í reiðhöllinni👏🏽 ATH, ekki verður posi á staðnum.
1500kr fyrir 7-12 ára og 2500kr fyrir fullorðna.
Frítt fyrir 6 ára og yngri