Hestamannafélagið Geysir óskar eftir reiðkennurum fyrir starfsárið 2023-2024. Öflugt námskeiðahald með fjölbreyttu sniði hefur verið í gangi hjá Geysi undanfarin ár og engin breyting verður þar á á komandi misserum.
Hestamannafélagið Geysir óskar eftir áhugasömum einstaklingum sem vilja taka þátt í okkar fjölbreytta og öfluga félagsstarfi. Á þetta bæði við um allt æskulýðsstarf og námskeiðahald fyrir fullorðna.
Hefðbundin reiðnámskeið verða á sínum stað en einnig er félagið opið fyrir öllum þeim hugmyndum sem reiðkennarar eru með.
Umsóknir óskast á netfangið hmfgeysir@gmail.com fyrir mánudagskvöldið 9. október 2022.
Ef einhverjar spurningar vakna þá er hægt að hafa samband við formann í síma 8662632.
Stjórnin