Námskeiðahald hestamannafélagsins okkar er af fjölbreyttum toga og er liðið haust til votts um það. Byrjaði veturinn strax á námskeiðum hjá tveimur reiðskólum í samstarfi við félagið, Hestafjör og Stakkholt. Báðir þessir eru með það að markmiði að allir krakkar hafi möguleikann að stunda hestamennsku óháð aðgengi sínu að hestum og búnaði. Therese Sundberg hjá Hestafjöri býður upp á haust og vor námskeið á Hellu og Edda S Thorlacius hjá reiðskólanum Stakkholti býður upp á vetrarstarf allan veturinn á Hvolsvelli.
Að auki hófst almennt reiðnámskeið, haldið í Rangárhöllinni, fyrir börn og unglinga hjá reiðkennaranum Caro Böse. Þar koma nemendur með sinn eigin hest og nauðsynlegan búnað. Kennslan fer fram í hóptímum einu sinni í viku i 6 skipti. Nemendur á þessu námskeiði eru þá einnig orðin vel kunnug hestum og þurfa að geta stjórnað hesti sínum sjálf.
Hestafjör hjá Theresu
Hestafjör eru 8 vikna haust og vor hestanámskeið fyrir börn á leik- og grunnskóla aldri sem langar til að fara á hestbak og umgangast hesta en hafa ekki aðgang að hestum sjálf. Námskeiðin eru hugsuð þannig að nemendur geti stundað hestamennsku eins og aðrar íþróttaæfingar þrátt fyrir að eiga ekki hest. Hestafjör er staðsett í hesthúsahverfinu á Hellu. Sumir vilja samt koma með sinn eigin hest og þá er það einnig velkomið.
Hestafjör eru með 8 hesta starfandi og með allan nauðsynlegan búnað sem þörf er á, svo sem hjálma, vesti og beislisbúnað. Á námskeiðunum gera krakkarnir ýmislegt tengt hestamennsku og hestum. Farið er á bak eins oft og veður leyfir en einnig eru bóklegir tímar þar sem nemendur læra um hesta og hestamennsku. Markmiðið með Hestafjöri er að kynnast hestinum, hestamennskunni og hafa gaman saman.
Reiðskólinn Stakkholt hjá Eddu
Þótt kuldinn bíti í kinnar er líf og fjör í reiðskólanum Stakkholti á Hvolsvelli. Þar læra börn að sitja hest, en líka að umgangast hann, hugsa um hann og skilja hann.
Edda S. Thorlacius stofnaði Stakkholt í janúar 2025 og er eini kennari skólans. Eitt helsta markmið reiðskólans er að minnka bilið á milli barna sem hafa aðgang að hestum og þeirra sem hafa það ekki. Kennslan fer fram innan samfellutíma Hvolsskóla, sem lýkur klukkan 16:00. Nemendur ganga beint úr skólanum út í hesthús, og því þarf enginn að skutla þeim eða eiga hest í fjölskyldunni. Þannig er aðgengið að hestamennsku orðið sambærilegt við annað íþróttastarf á Hvolsvelli.
Námskeiðin standa yfir allan veturinn, frá september til 1. maí. Hver hópur hittist einu sinni í viku og veturinn endar á Æskulýðssýningu Geysis, þar sem nemendur sýna hvað þeir hafa lært.
Í Stakkholti kynnast nemendur hestinum frá öllum hliðum. Áður en farið er á bak læra krakkarnir að kemba, hreinsa hófa og lesa í líðan hestsins. Þannig verður til traust á milli barns og hests, og það er grunnurinn að öllu sem á eftir kemur. Reiðkennslan miðast við hvern og einn. Byrjendur fara á bak á rólegum og vönum hestum, en þeir sem eru lengra komnir æfa ásetu og gangtegundir og spreyta sig á þrautum og reiðtúrum. Öryggið er alltaf í fyrirrúmi. Hestarnir í Stakkholti eru valdir fyrir gott geðslag, allir nemendur bera hjálm og yngstu knaparnir eru aldrei einir.
Einn mikilvægasti hluti tímans fer þó fram eftir að hestarnir eru komnir inn. Eftir hvern tíma safnast nemendur saman í hlýjunni á kaffistofunni, drekka kakó, spjalla og maula kex.
„Samverustundin á kaffistofunni skiptir ótrúlega miklu máli, sérstaklega núna þegar kalt er í veðri,“ segir Edda. „Þar verða krakkarnir að hóp og vinir, ekki bara knapar.“
Þegar veðrið er vont er kaffistofan aðal kennslurými dagsins þar sem er teiknað og litað, farið yfir heiti á reiðtygjum og líkamshlutum hestsins.











