Hestamannafélagið Geysir efndi til uppskeruhátíðar laugardaginn 14. nóvember, þar sem heiðraðir voru knapar og ræktendur félagsins og árinu fagnað með glæsilegum kvöldverð og skemmtun. Mikil stemning var yfir allt kvöldið í virkilega fallega skreyttum sal Hvolsins á Hvolsvelli. Skemmtinefnd Geysis sá um hátíðina ásamt formanni og góðum velunnurum. Hestamenn félagsins og gestir fjölmenntu á viðburðinn og var þétt setið.
Veislustjóri kvöldsins var Erlendur Árnason sem stýrði skemmtuninni með mikilli prýði og kímni. Sóley Margeirsdóttir, formaður Geysis, stýrði verðlaunaafhendingu ásamt stjórn og við tóku hljómsveitin Sveitamenn sem léku fyrir dansi fram á nótt. Var dansgólfið með sanni vel stigið fram á síðustu mínútu!
Í kvöld er svo Uppskeruhátíð LH í Gamla Bíó í Reykjavík, við hjá Geysi óskum öllum góðar skemmtunar þar !
Þessir knapar og ræktendur hlutu viðurkenningu á hátíðinni:
Íþróttaknapi Geysis 2026 er Ásmundur Ernir Snorrason og Stella Sólveig Pálmarsdóttir tók við verðlaununum.
Gæðingaknapi Geysis 2026 er Hans Þór Hilmarsson
Skeiðknapi Geysis 2026 er Gústaf Ásgeir Hinriksson
Ungmenni Geysis 2026 er Jón Ársæll Bergmann
Mjölnisbikarinn 2026 hlaut Ásmundur Ernir Snorrason á Hlökk frá Strandarhöfði með einkunina 9,37
Heimahagabikarinn 2026 hlaut Sarah Maagaard Nielsen
Knapi ársins 2026 er Ásmundur Ernir Snorrason en Stella Sólveig tók við verðlaunum fyrir hans hönd.
Æskulýðsnefnd Geysis var heiðruð eftir að hafa hlotið Æskulýðsbikar LH þetta árið.
Hryssubikar Geysis hlaut Alda frá Sumarliðabæ 2, Ae. 8.81 – Birgir Már Ragnarsson, Ólafur Ásgeirsson tók við bikarnum.
Stóðhestabikar Geysis hlaut Agnar frá Margrétarhofi, Ae. 8,81 – Reynir Örn Pálmarsson en Bylgja Gauksdóttir tók við gripnum.
Keppnishestabú Geysis 2026 er Hjarðartún, Kristín Heimisdóttir og Bjarni Elvar Pjetursson
Ræktunarbú Geysis 2026 er Sumarliðabær 2 og Ólafur Ásgeirsson tók við verðlaununum fyrir hönd búsins.
Allir aldursflokkar kynbótahrossa bæði stóðhestar og hryssur
- 7 vetra og eldri
- Hryssur – Ramona frá Heljardal, Ae. 8,84 – Anton Páll Níelsson – Ólafur Andri Guðmundsson tók við verðlaunum.
- Stóðhestar – Agnar frá Margrétarhofi, Ae. 8,81 – Reynir Örn Pálmarsson – Bylgja Gauksdóttir tók við verðlaunum
- 6 vetra
- Hryssur – Alda frá Sumarliðabæ 2, Ae. 8.81 – Birgir Már Ragnarsson – Ólafur Ásgeirsson tók við verðlaunum
- Stóðhestur – Svartur Frá Vöðlum, Ae. 8.76 – Ástríður Lilja Guðjónsdóttir og Margeir Þorgeirsson – Sóley Margeirsdóttir tók við verðlaunum
- 5 vetra
- Hryssur – Rögn frá Feti, Ae. 8,60 – Fet ehf. – Bylgja Gauksdóttir tók við verðlaunum
- Stóðhestur – Huginn frá Neðra-Seli, Ae. 8,65 – Birgir Hólm Ólafsson
- 4 vetra
- Hryssur – Hrefna frá Hemlu II, Ae. 8,47 – Lovísa Herborg Ragnarsdóttir, Vignir Siggeirsson – Benjamín Sandur tók við verðlaunum fyrir þeirra hönd.
- Stóðhestur – Sigur frá Leirulæk, Ae. 8,51 – Birgitta Bjarnadóttir og Þorgeir Ólafsson
Einnig fengu meistarar ársins viðurkenningu fyrir sína sigra árins
Íslandsmeistarar 2026
Dagur Sigurðarson og Tromma frá Skúfslæk – 100m flugskeið P2
Sigurður Steingrímsson og Gjafar frá Hrafnsstöðum – 150m skeið P3
Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfði, samanlagðir sigurvegarar í fjórgangsgreinum
Gústaf Ásgeir Hinriksson og Gýmir frá Skúfslæk samanlagðir sigurvegarar í fimmgangsgreinum
Dagur Sigurðarson og Blakkur frá Traðarholti, samanlagðir sigurvegari í fimmgangsgreinum
Norðurlandameistarar 2026
Jón Ársæll Bergmann og Viskusteinn frá Íbishóli – Tölt T1
Jón Ársæll Bergmann og Viskusteinn frá Íbishóli – B-flokkur ungmenna
Dagur Sigurðarson og Galbjartur frá Hóli – 250m skeið P1
Landsmótsmeistarar 2026
Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfði – Tölt T1
Sindri frá Hjarðartúni og Hans Þór Hilmarsson – A-flokkur gæðinga






































