Leiðin á Landsmót

Sjálfstætt framhald keppnisnámskeiðs

Skráning opnar í kl. 12:00 16. apríl á sjálfstætt framhald keppnisnámskeiðsins sem farið hefur fram í vetur í Rangárhöllinni. Námskeiðið er ætlað börnum, unglingum og ungmennum. Það er ekki skilyrði að hafa tekið þátt í vetur til þess að taka þátt í þessu námskeiði. Námskeiðið samanstendur af tveimur einkatímum á velli fyrir íþróttamót Geysis og í framhaldi tveimur einkatímum fyrir úrtöku fyrir Landsmót.

Einnig verður haldið æfingamót (7.6.2026) fyrir úrtöku sem hluti af námskeiðinu þar sem þátttakendur fá endurgjöf frá gæðingadómara um sitt program.

Reiðkennarar verða Ólafur Andri Guðmundsson og Caro Böse

Skráningargjald er 15.000 kr.