Nú í júní verða sumarnámskeið í samstarfi við Geysi bæði hjá Ölmu Gullu í Traðarási og Eddu í Reiðskólanum Stakkholti.

Nemendur skrá sig á námskeið í gegnum Abler og verða þá sjálfkrafa félagsmenn í hestamannafélaginu Geysi. Félagsgjöld eru ekki greidd fyrr en upp úr 18 ára aldri.

Traðarás

Sumarnámskeiðin í Traðarási snúa aftur. Útreiðarnámskeið ætlað börnum sem sótt hafa námskeið innan Geysis í vetur. Börnin koma með eigin hest og búnað. Lykilatriði er að hesturinn sé traustur, í líkamlega góðu ásigkomulagi og henti getustigi.

Staðsetning: Traðarás

Námskeiðin fara fram:

  • 8-12 júní frá kl 9-12. Börn fædd 2018 og 2017.
  • 22-26 júní frá 9-12. Börn fædd 2016 og eldri.

Námskeiðið eflir kjark og færni til að beita hesti í mismunandi aðstæðum. Frábært tækifæri fyrir börn að ríða út saman undir leiðsögn. Börn þurfa að vera klædd eftir veðri og koma með nesti ef þau vilja.

Takmarkaður fjöldi barna kemst að í hverri viku.

Námskeiðsgjald 24.000 kr og skráning fer fram inn á Abler.

Ef spurningar vakna er hægt að hafa samband við Ölmu Gullu s: 661-2401

Reiðskólinn Stakkholt

Fyrstu sumarnámskeið reiðskólans verða í júní 2026. Námskeiðin verða fjögurra daga vika frá kl 08:30-13:00, mán-fim fyrir börn fædd 2017-2010, blandaðir hópar, 8 nemendur í hvorri viku.

Staðsetning: Hesthúsahverfið Miðkriki og reiðhöllin Skeiðvangur í Miðkrika

Námskeiðin fara fram:

  • 1.-4. júní kl. 8:30-13:00
  • 8.-11. júní kl. 8:3-13:00

Námskeiðið er fyrir alla, hvort sem þeir hafa tekið þátt í námskeiðum Geysis áður eður ei. Vikan er námskeið í hestamennsku svo börnin taka þátt í öllu sem snýr að því að taka hest og þjálfa á sumartíma. Við sækjum hestana út á beit, kembum, förum yfir hestana, leggjum við og á, förum á bak og fræðumst um ýmsa þætti tengt hestum. Nemendur koma með hádegismat í nesti til að setjast niður í spjall og mat í lok dags. Við tökum einnig morgun-kaffitíma saman í boði Stakkholts.

Skráning fer fram inni á Abler.

Innifalið í námskeiðsgjaldinu, sem er ISK 37.000 á barn:

  • Hestar
  • Reiðtygi
  • Kaffitími
  • Hjálmur
  • Vesti

Ef einhverjar spurningar vakna, má hafa samband við Eddu í síma 6953551, á heimasíðu Stakkholts eða facebook síðu Stakkholts