Nú fer senn að líða að Landsmóti hestamanna sem haldið verður að þessu sinni á Hólum í Hjaltadal, Skagafirði. Við hjá Hestamannafélaginu Geysi erum virkilega spennt fyrir mótinu og tilheyrandi aðdraganda og undirbúningi.
Undirbúningur félagsmanna okkar er að vanda löngu hafinn og hestar að verða klárir í úrtöku. Meðal annars hafa yfirstandandi keppnisnámskeið fyrir börn og unglinga, með aðstoð faglegra reiðkennara, leitt ungu fulltrúana okkar að verkefninu.
Geysir má senda 8 keppendur í öllum flokkum að undanskildum B-flokk áhugamanna þar sem við eigum 4 fulltrúa. Þegar úrtöku sæti hafa verið fyllt er mögulegt að fleiri komist inn af stöðulistum en 6 efstu í A-flokk, B-flokk, A-flokk ungmenna og B-flokk ungmenna komast inn. Í barna- og unglingaflokkum verður tekið inn af stöðulistum á meðan hægt er að fylla upp í Landskvótann. Það er því mögulegt að Hestamannafélagið Geysir sendi 60-80 keppendur á Landsmót hestamanna 2026.
Næst á dagskrá er svo æfingamót sem haldið verður á laugardaginn kemur, 6. júní.
Viðburður fyrir LM 23. júní
Til að þjappa Landsmóts hópnum okkar saman ætlum við að hittast fyrir mót, eða þann 23. júní, kíkja í reiðtúr jafnvel og borða saman. Gaman væri ef sem flestir knapar, aðstandendur og aðstoðarfólk hitti okkur þar. Nánar auglýst síðar.
Jakkar fyrir félagsmenn á Landsmóti
Geysir sér öllum fyrir jökkum sem keppa fyrir hönd Geysis. Verið er að sauma jakka til að allir geti verið í einum slíkum. Sóley Margeirs sér um að úthluta þeim.
Grill á Landsmótssvæðinu: Við ætlum að hittast á Landsmóts svæðinu og grilla saman. Nánari dagsetning, tímasetning, auglýst síðar þegar nákvæm dagskrá LM verður klár.
Hesthúspláss á LM: Hver keppandi sér sjálfur um að finna sér hesthúspláss í nágrenni Landsmótssvæðisins, þ.e. helst í Skagafirði. Ef einhver er í vandræðum má senda hesthúsnefnd á staðnum
Varðandi hesthúspláss á Hólum á meðan á keppni stendur er hlutunum háttað þannig að félagið okkar fær 8 stíur til umráða á Brúnastöðum á meðan á forkeppni stendur. Sér stjórn Geysis um að úthluta þeim stíum í takt við þátttöku okkar félagsmanna.
Við hlökkum til samverunnar með ykkur næstu vikurnar !
Áfram Geysir !
………
höf. Edda S Thorlacius
