Reiðveganefnd hestamannafélagsins Geysis starfar iðulega ár hvert til að bæta samgöngur hestamanna um okkar nær umhverfi og sveitir. Einnig fylgist nefndin vel með því þegar framkvæmdir og breytingar eiga sér stað sem raska þessum leiðum.
Áningarhólf er komið upp við Stóra Dímon
Sett hefur verið upp nýtt áningarhólf við Stóra Dímon að sunnanverðu.
Reiðleiðir um Vaðölduver
Meðan á framkvæmdatíma stendur við vindmyllugarð í Vaðölduveri hefur Landsvirkjun stikað reiðleið framhjá framkvæmdasvæðinu. Leiðin frá Þjórsá að Haldi á því að vera aðgengileg og auðrötuð. Að auki hefur Landsvirkjun gefið upp símanúmer sem hæg er að tilkynna ferðir hestahópa í. Það er gert til að minnka líkur á slysum sem gætu orðið við að hestar fælist við hávaða af framkvæmdum á svæðinu. Hægt er að hringja og tilkynna ferðir í síma 834-5555 og verður þá kappkostað að halda framkvæmdum í lágmarki meðan hestahópur fer um svæðið.

Nýtt áningarhólf Efsta-Seli
Nýtt áningarhólf hefur verið útbúið við Efsta-Sel. Við erum svo heppin að hafa félagsmenn eins og Finn, sem hringdi og bauð að ef félagið væri til í að nota hluta reiðvegafjár til að kosta gott hlið, þá væri öllum frjálst að nota nýtt áningarhólf við heimreiðina að Efsta-Seli. Hliðið verður sett upp fjótlega – við minnum alla á að ganga vel um. Sem sagt, heimreiðinn að Efsta-Seli var breytt nýlega og við fáum að nota skika við veginn sem áningarhólf.



