Sirkus námskeið – Ragnheiður Þorvaldsdóttir

Hestamannafélagið Geysir fer vel af stað inn í árið með virku starfi á sviði fræðsu, reiðkennslu, skemmtunar og æskulýðsstarfi. Það er af nógu að taka og eitthvað fyrir alla, hvort sem það er atvinnufólk, almennt hestafólk eða forvitnir nýliðar! Hér er örlítil yfirferð yfir það sem við höfum verið að bralla.

10.-11. janúar var haldið Sirkus námskeið í Rangárhöllinni þar sem kennarinn Ragnheiður Þorvaldsdóttir gefur nemendum sínum tækifæri til að tileinka sér fjölbreyttari aðferðir við að stunda sína hestamennsku.

 

 

14. janúar – Almennt reiðnámskeið fyrir börn hófst í Skeiðvangi og Rangárhöllinni. Reiðkennarar eru Eygló Arna Guðnadóttir og Selina Bauer. Einnig voru pollar og kríli skráð á námskeið sem hefjast í febrúar á laugardögum.

15. janúar – Keppnisnámskeið hófst í Rangárhöllinni. Reiðkennarar eru Carolin Böse og Gústaf Ásgeir Hinriksson. Þátttaka er alveg frábær en á námskeiðið eru 25 nemendur skráðir, af því eru 19 í barnaflokki og 6 í unglingaflokki. Framtíðin er björt hjá okkur í Geysi <3

 

16. janúar – Æskulýðsferð félagsins var farin þennan föstudag með 37 börn. Lagt var af stað frá Hvolsvelli um 14:30 og fleiri teknir upp á Hellu og Landvegamótum. Farið var í heimsókn á hrossaræktarbúið Sunnuhvol þar sem þær Glódís og Védís tóku á móti krökkunum. Næsta stopp var svo á Ingólfshvoli þar sem hópurinn hitti Teit Árnason og Eyrúnu Ýr. Ferðin endaði svo á að allir borðuðu saman áður en haldið var heim á leið. Ferðin gekk ljómandi vel og virtust allir njóta sín vel. Ferðin var opin öllum Geysisbörnum fæddum 2017 og fyrr og félagið bauð þeim frítt í ferðina. 🫶

Fræðslukvöld i Skeiðvangi

Sjálfboðaliðar Geysis sáu um að vera fulltrúar fullorðna fólksins svo foreldrar þurftu ekki að fylgja börnum sínum.

19. janúar – Fræðslunefnd skipulagði fræðslukvöld með Einari Ásgeirssyni Fóðurfræðing Fóðurblöndunnar. Hann tók BS nám í hestafræði frá LBHÍ og Háskólanum á Hólum og tók meistaranám í fóðurfræði við Landbúnaðarháskóla Svíþjóðar, SLU. Einar starfar sem fóðurfræðingur hjá Fóðurblöndunni.
Einar fór yfir fóðurfræði hrossa, helstu næringarefni og þarfir hrossa í þjálfun, hvað þarf að hugsa um þegar kemur að fóðrun hrossa á húsi og hvernig við byggjum upp hestinn sem íþrótta“mann“.

Meistaradeildarkvöld á Gallery Pizza Landvegamótum

 

 

22. janúar – Skemmtinefnd Geysis stóð fyrir, likt og á síðasta ári, að halda Meistaradeildarkvöld innan Rangárþings þar sem félögum og öðrum gestum er boðið að koma saman og horfa á Meistaradeildina í sjónvarpi Eiðfaxa TV. Þetta fyrsta kvöld vetrarins var haldið á Landvegamótum Gallery Pizza. Það var mjög hugguleg stemning og gaman að horfa á okkar allra sterkustu knapa leika listir sínar.

 

 

höf. Edda S Thorlacius