Með hækkandi sól, hærra hitastigi og grænu grasi má fara að sjá hópa taka sig saman og ríða lengri leiðir hér á félagssvæði Geysis. Næstkomandi miðvikudag, daginn fyrir uppstigningardag, hafa konur efnt til kvennareiðar bæði frá Hvolsvelli og Hellu.

……………………………………………………………………………………….

Árleg kvennareið, farin frá Hvolsvelli er auglýst svohljóðandi á viðburði þeirra á Facebook:

Þema: Mamma Mía 💃🌼💃🪩
Takið þið kvöldið frá 🫶🥰🤠
Við hittumst klukkan 18 við reiðhöllina í Miðkrika.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flestar og ætlum að eiga skemmtilega kvöldstund saman. Það verða hamborgarar og karaoke 🍔🎤
Verð: ISK 5000 á konu
Verðlaun fyrir flottasta búninginn 🥳
Skráning: Hjá Marlene á Messenger eða 📞 8445443
……………………………………………………………………………………..

Kvennareið, farin frá Hellu 🥳🤠

Mæting kl.17.00 við Orravelli 2 í nýja hesthúsahverfinu Hellu.

Lagt verður af stað þaðan kl 17.30. Leiðin verður um það bil 4-6km og endum við í súpu og öðru góðgæti aftur á Orravöllum. Gos, kaffi og vatn á staðnum. Þær sem vilja eitthvað sterkara eru hvattar til að kippa því með sér.

Fyrir allt þetta borgið þið ISK 2.500,-

Skráning Anna Guðrún Jónsdóttir S:897-5233  og Þyri Sölva Bjargardóttir S:898 8885