Nú fer senn að líða að Landsmóti hestamanna sem haldið verður að þessu sinni á Hólum í Hjaltadal, Skagafirði. Við hjá Hestamannafélaginu Geysi erum virkilega spennt fyrir mótinu og tilheyrandi aðdraganda og undirbúningi.

Undirbúningur félagsmanna okkar er að vanda löngu hafinn og hestar að verða klárir í úrtöku. Meðal annars hafa yfirstandandi keppnisnámskeið fyrir börn og unglinga, með aðstoð faglegra reiðkennara, leitt ungu fulltrúana okkar að verkefninu.

Geysir má senda 8 keppendur í öllum flokkum að undanskildum B-flokk áhugamanna þar sem við eigum 4 fulltrúa. Þegar úrtöku sæti hafa verið fyllt er mögulegt að fleiri komist inn af stöðulistum en 6 efstu í A-flokk, B-flokk, A-flokk ungmenna og B-flokk ungmenna komast inn. Í barna- og unglingaflokkum verður tekið inn af stöðulistum á meðan hægt er að fylla upp í Landskvótann. Það er því mögulegt að Hestamannafélagið Geysir sendi 60-80 keppendur á Landsmót hestamanna 2026.

Næst á dagskrá er svo æfingamót sem haldið verður á laugardaginn kemur, 6. júní.

Skráningu lýkur núna 4. júní kl 23:59.
Boðið verður uppá alla flokka gæðingakeppninnar sem keppt er í á Landsmóti.
Þrír dómarar dæma og fá knapar umsögn að móti loknu.
Dagskrá verður birt um leið og skráning liggur fyrir.
Skráningargjöld eru 4500 kr fyrir börn og unglinga og 6500 kr fyrir fullorðna.
Þeir sem skráðir eru á Keppnisnámskeið senda skilaboð til Caro Böse fyrir skráningu, innifalin er ein skráning. Frjálst er að skrá fleiri skráningar í gegnum Sportfeng.
Úrtakan sjálf fer síðan fram á Rangárbökkum þann 12.-14. júní nk.
ATH!! Skráningu lýkur núna 4. júní kl 23:50!! 
Mótið verður virkilega spennandi og hvetjum við aðstandendur og aðra áhugasama til að koma og fylgjast með okkar frábæru knöpum etja kappi um sæti á Landsmót 2026 á Hólum.
Þeir félagsmenn sem komast inn á Landsmót fá skráningargjöldin greidd af Geysi. Aðgangsmiði inn á mótið er EKKI innifalinn og bendum við á tix.is fyrir þau kaup.

Viðburður fyrir LM 23. júní

Til að þjappa Landsmóts hópnum okkar saman ætlum við að hittast fyrir mót, eða þann 23. júní, kíkja í reiðtúr jafnvel og borða saman. Gaman væri ef sem flestir knapar, aðstandendur og aðstoðarfólk hitti okkur þar. Nánar auglýst síðar.

Jakkar fyrir félagsmenn á Landsmóti

Geysir sér öllum fyrir jökkum sem keppa fyrir hönd Geysis. Verið er að sauma jakka til að allir geti verið í einum slíkum. Sóley Margeirs sér um að úthluta þeim.

Grill á Landsmótssvæðinu: Við ætlum að hittast á Landsmóts svæðinu og grilla saman. Nánari dagsetning, tímasetning, auglýst síðar þegar nákvæm dagskrá LM verður klár.

Hesthúspláss á LM: Hver keppandi sér sjálfur um að finna sér hesthúspláss í nágrenni Landsmótssvæðisins, þ.e. helst í Skagafirði. Ef einhver er í vandræðum má senda hesthúsnefnd á staðnum tölvupóst (ingunn@landsmot.is) og þau reyna eftir bestu getu að aðstoða.

Varðandi hesthúspláss á Hólum á meðan á keppni stendur er hlutunum háttað þannig að félagið okkar fær 8 stíur til umráða á Brúnastöðum á meðan á forkeppni stendur. Sér stjórn Geysis um að úthluta þeim stíum í takt við þátttöku okkar félagsmanna.

 

Við hlökkum til samverunnar með ykkur næstu vikurnar !
Áfram Geysir !

………

höf. Edda S Thorlacius