Nú hefur greiðsluseðill vegna félagsgjalds ársins 2026 birst í heimabanka allra félagsmanna 18 – 69 ára og viljum við vinsamlega benda á að þónokkrir eru enn ógreiddir. Greiða þarf gjaldið í síðasta lagi 20. maí.
Worldfengur
Allir félagsmenn í Hestamannafélaginu Geysi fá frían aðgang að Worldfeng innifalið í félagsgjaldinu. Til þess að virkja þennan aðgang þá þurfa félagsmenn að senda póst á hmfgeysir@gmail.com
Athugið að ef félagsgjöld hafa ekki verið greidd fyrir 20. maí fellur viðkomandi af félagatali Geysis.
Samhliða því fellur niður þátttökuréttur í úrtöku fyrir Landsmót (LM) fyrir þá sem stefna þangað sem og af öllum mótum, m.a. íþróttamótinu næstu helgi. Auk þess mun aðgangur að worldfeng lokast.
Við hvetjum alla til að ganga frá greiðslu tímanlega til að tryggja áframhaldandi félagsaðild.
Ef einhver telur sig ekki hafa fengið kröfu vegna félagsgjalda, vinsamlegast sendið á hmfgeysir@gmail.com.
Nánari upplýsingar um starfsemi félagsins er að finna á Heimasíðu félagsins, www.hmfgeysir.is.
Kveðja,
Stjórn Hestamannafélagsins Geysis
