Hestamannafélagið Geysir heldur Suðurlandsmót yngri flokka 14.-16. ágúst næstkomandi.
Opnað hefur verið fyrir skráningar inni í Sportfeng og er skráningarfrestur til 9. ágúst kl 23:59. Hvetjum við alla til að skrá tímanlega.
Boðið verður uppá eftirfarandi greinar:
Pollaflokkur: pollatölt
Barnaflokkur: V2, T3 og T4.
Unglingaflokkur: V2, F2, T3, T4, PP1 og P2.
Ungmennaflokkur: V2, F2, T3, T4, PP1 og P2.
Einnig verður boðið upp á gæðingakeppni:
Barnaflokkur, Unglingaflokkur, B-fokkur ungmenna, A-flokkur ungmenna og Gæðingatöllt í öllum aldursflokkum.
Skráningargjald á grein er 6500 kr nema 5000 kr í 100m skeið.
Nái fjöldi í flokk ekki tilskyldum fjölda (5) áskiljum við okkur rétt til þess að fella viðkomandi flokk niður.
Allar fyrirspurnir vegna mótahalds berist á skraninggeysir@gmail.com
