Síðan árið 1996 hefur Landssamband hestamanna [LH] afhent virkilega eftirsóknarverðan bikar á ári hverju. Sá bikar er Æskulýðsbikarinn og hlýtur hann það félag sem þykir hafa skarað frammúr á árinu með starfi sínu.
Þetta árið fengum við hjá Hestamannafélaginu Geysir Æskulýðsbikar LH !
LH velur handhafa bikarsins með skoðun á ársskýrslum sem hestamannafélög landsins skila inn. Viðurkenningin er ein sú æðsta sem félagi getur hlotnast. Við erum afar stolt af starfi okkar og þakklát þeim nefndarmönnum sem lögðu þar hönd á plóg. Þetta árið hafa þær Marlene Thies (formaður), Stella Sólveig Pálmarsdóttir (formaður), Klara Sif Ásmundsdóttir, Marie Hollstein, Ástríður Magnúsdóttir, Heiðdís Arna Ingvarsdóttir, Åsa Ljungberg og Hulda Björk Haraldsdóttir staðið vaktina og þökkum við þeim kærlega fyrir frábæra frammistöðu. Æskulýðsstarf er jú mikilvægasta starf félagsins þar sem það stendur fyrir grasrótina og nýliðun í sportinu.
Alls sendu 17 félög inn skýrslu um sitt æskulýðsstarf en skýrsluhaldið og skilin eru mikilvæg upplýsingaöflun fyrir æskulýðsnefnd LH.
„Það er ánægjulegt að sjá, að áfram halda félögin að stíga skref í þá átt að líta á sig sem íþróttafélög og bjóða upp á markvissar æfingar á heilsárs grundvelli. Nefndin telur það skref í rétta átt og að með þeirri stefnu muni greinin vaxa, vera samkeppnishæfari og dafni til framtíðar. – sleppa mögulega,“ sagði Linda Björgvinsdóttir þegar hún athenti bikarinn á Landsþinginu í um heildina.
„Mikill metnaður hefur verið lagður í æskulýðsstarf þess félags sem standa þótti upp úr í ár. Félagið leitar eftir því að mæta öllum aldri, áhuga og reynslu og býður upp fjölbreytt námskeið allt frá fyrstu kynnum af hestamennskunni, yfir í markvissa þjálfun fyrir lengra komna. Félagið leggur mikið upp úr því að skapa umhverfi þar sem allir fá tækifæri til að efla færni sína og sjálfstraust, njóta samveru við hestinn og leggur áherslu á tenglsamyndun milli barna og ungmenna sem deila þessum sameiginlega áhuga á hestamennskunni.“
„Félagið bauð upp á mjög fjölbreytt námskeiðsúrval. Það fór í Æskulýðsferðir, Fjölskyldureiðtúr og Hestaferð – Stóð fyrir hópefli með fótboltaleikjum og hobbyhestadegi, þar sem ungir sem aldnir spreyttu sig í þrautabraut. Þau stóðu fyrir fyrirlestri um andlegan styrk knapa í keppni og þjálfun, ásamt því að standa fyrir stórglæsilegri Æskulýðssýningu 1. Maí, þar sem yfir 100 ungir Geysisfélagar sýndu listir sínar.“
Handhafar æskulýðsbikarsins eru eftirfarandi:
2026 – Geysir
2025 – Skagfirðingur
2024 – Sprettur
2023 – Jökull
2022 – Sörli
2021 – Sleipnir
2020 – Hornfirðingur
2019 – Geysir
2018 – Hringur
2017 – Brimfaxi
2016 – Sörli
2015 – Sprettur
2014 – Fákur
2013 – Sindri
2012 – Sleipnir
2011 – Hörður
2010 – Logi
2009 – Dreyri
2008 – Þytur
2007 – Máni
2006 – Léttir
2005 – Andvari
2004 – Blær
2003 – Fákur
2002 – Smári
2001 – Máni
2000 – Freyfaxi
1999 – Hörður
1998 – Sörli
1997 – Gustur
1996 – Léttir
